AGM Information • Feb 16, 2017
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 17. mars 2017 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00
Dagskrá:
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð
til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr.
samþykkta félagsins.
Tillögur:
Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði
12,1% arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 2,1% skv. 1. mgr.
14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 21.788.994,- eða 0,12 kr. á hvern útgefin
hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild
stofnsjóðs, alls kr. 17.027.514,- Arðleysisdagur er 20. mars og
arðréttindadagur er 21. mars. Greiðsludagur arðs er 26. apríl n.k.
Viðhengi:
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.