Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Share Issue/Capital Change 2016

Sep 26, 2016

2204_rns_2016-09-26_b8c12b50-d074-469b-9874-14c64609c7eb.html

Share Issue/Capital Change

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sjóvá: Lindarhvoll ehf. selur 13,93% hlut í Sjóvá

Sjóvá: Lindarhvoll ehf. selur 13,93% hlut í Sjóvá

Samkvæmt upplýsingum í frétt frá Landsbankanum lauk útboði á eignarhlut
Ríkissjóðs Íslands í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. kl. 8.30 í dag, mánudaginn
26. september 2016. Markaðsviðskipti Landsbanka Íslands höfðu umsjón með
útboðinu.

Fjárfestar óskuðu eftir því að kaupa 286.051.111 hluta í Sjóvá, eða sem nemur
18,3% af heildarhlutafé í Sjóvá.

Sölugengi í útboðinu var ákveðið 12,91 krónur á hlut. Heildarnafnverð
samþykktra tilboða eftir skerðingu var 217.655.980 hlutir, eða sem samsvarar
13,93% af heildarhlutafé Sjóvá. Heildarsöluverðmæti samþykktra tilboða eftir
skerðingu er því rúmlega 2,8 ma.kr. Að útboðinu loknu á Ríkissjóður ekki
eignarhlut í Sjóvá.

Öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta
samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og
sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 1.250.000
hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í
útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað.

Viðskiptadagur vegna útboðsins er 26. september 2016 og greiðslu- og
afhendingardagur vegna viðskiptanna er miðvikudagurinn 28. september 2016.

Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru á vefsíðu
Landsbankans, www.landsbankinn.is þann 23. september 2016.

Nánari upplýsingar veita:

Árni Maríasson, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans, s.
410-7335/863-9998

Arnar Arnarsson, Markaðsviðskipti Landsbankans, s. 410-7336/821-2083