Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Proxy Solicitation & Information Statement 2021

Sep 27, 2021

2204_rns_2021-09-27_1092bf52-efe3-4538-b042-6248638911b2.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sjóva

440 2000

Hluthafafundur í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. 19. október 2021

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður 19. október 2021 kl. 10 í fundarsal á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Heildarhlutafé félagsins er kr. 1.334.106.378. Á hluthafafundi fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé.

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

1. Lækkun hlutafjár.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. gerir tillögu um að hlutafé Sjóvá-Almennra trygginga hf. verði lækkað um kr. 66.489.362, úr kr. 1.334.106.378 í kr. 1.267.617.016 að nafnverði, með ráðstöfun lækkunarfjárins til hluthafa Sjóvá-Almennra trygginga hf., í samræmi við ákvæði 2. töluliðar 2. mgr. 51. gr. laga nr. 2/1995. Lækkunin fari fram miðað við gengi á hlutum í félaginu í lok dags 27. september 2021.

Tillagan um hlutafjár lækkun felur í sér að greidd er af eignum félagsins hærri fjárhæð en sem nemur lækkunarfjárhæðinni, eða sem svarar kr. 2.500.000.000 í heild og þar með kr. 2.433.510.638 umfram lækkun nafnverðs. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð, eða kr. 2.433.510.638, mun verða færð til lækkunar á yfirverðsreikningi félagsins.

Tilgangur hlutafjár lækkunarinnar er að laga fjármagnsskipan félagsins að gjaldbolsviðmiðum stjórnar en gjaldbolshluttallð liggur nú fyrir ofan efri mörk viðmiðanna.

Verði tillagan samþykkt mun félagið óska eftir því við fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra að félaginu verði veitt undanþága frá innkollunarskyldu, sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Að því tilskildu að sú undanþága verði veitt verður greiðsla til hluthafa innt af hendi svo fljótt sem auðið er, en þó aldrei fyrr en fimm viðskiptadögum eftir að fyrirvörum er fullnægt, að því gefnu að lögboðnum forsendum sé að öðru leyti fullnægt. Mun félagið þá jafnframt senda tilkynningu til kauphallar og upplýsa nánar um framkvæmd lækkunarinnar, þar með talið um viðmiðunardagsetningar varðandi réttindadag, réttindaleysisdag og áætlaðan greiðsludag. Við útgreiðslu til hluthafa skal miða við hlutaskrá félagsins í lok viðskiptadags fimm viðskiptadögum fyrir greiðsludag.

Að auki felast í tillögunni breytingar á 4. gr. samþykta félagsins um hlutafé til samræmis við hlutafjár lækkunina.

2. Önnur mál löglega fram borin.

Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunar-tillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 10, 9. október 2021. Hafí hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafafundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á veffangið [email protected]. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vef félagsins.

Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum.

Öllum ákvörðunum heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir á grundvelli sóttvarnalaga verður framfylgt á hluthafafundinum. Hluthöfum býðst að veita umboð til umboðsmanns um þátttöku á fundinum með fyrirrælum um hvernig atkvæði skuli greidd um þær tillögur sem til af-greiðslu eru. Hægt er að sækja viðeigandi umboðseyðublað á vefsvæði Sjóvá-Almennra trygginga hf.: https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/hluthafafundur/hluthafafundur-2021/ og senda rafrænt á [email protected]. Nánari upplýsingar um umboð og skil þeirra er að finna í fyrrgreindu umboðseyðublaði á vefsvæði Sjóvá.

Hluthafafundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef löglega er til hans boðað.

Fundarboð þetta, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæða, dagskrá hluthafafundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir hluthafafund, ásamt umboðseyðublaði eru að gengileg á vefsvæði félagsins https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/hluthafafundur/hluthafafundur-2021/.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa geta skráð sig á hluthafafundinn á fundarstað frá kl. 9.30 á fundardag og fengið fundargögn afhent. Hluthafafundur og fundargögn verða á íslensku.

sjova.is

Reykjavík, 27. september 2021.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.

SJÓVÁ