AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2017
Feb 22, 2017
2204_rns_2017-02-22_312c6d17-4dc3-4ef9-847a-40b77a0b5f6c.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóvá
440 2000
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. verður haldinn 17. mars 2017
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður í fundarsal félagsins, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, fóstudaginn 17. mars 2017 og hefst kl. 15:00.
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til sambykktar.
- Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu reikningsári.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum.
- Tillögur um breytingar á sambykktum félagsins.
a. Tillaga stjórnar félagsins um breytingu á sambykktum þess, sem í meginatriðum lýtur að breytingu á 4. gr. í tengslum við tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins.
- Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunar-tillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 7. mars 2017. Hafí hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á veffangið [email protected].
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins, www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurðar um annað. Stjórnarkjör skal þó vera skriflegt ef fleiri eru í kjörí til stjórnar en kjósa skal. Kveðið er nánar um stjórnarkjör í sambykktum félagsins en kosið er eftir hlutfallskosningu. Athygli er þó vakin á ákvæðum samþykka um hlutfall kynja í stjórn félagsins.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist félaginu a.m.k. fimm dögum fyrir auglýstan aðalfund. Hluthafar geta jafnframt vitjað atkvæðaseðla í höfuðstöðvum félagsins frá sama tíma og greitt þar atkvæði. Hluthafar getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess og það má hvenær sem er afturkalla. Rafræn umboð má senda á veffangið [email protected] og skulu þeim fylgja upplýsingar til nægjanlegrar sönunar um að rafræna umboðið stafí frá hluthafa, svo sem mynd vegabréfs eða ökuskírteinis hluthafa eða fyrirvarsmanns hluthafa.
Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega er til hans boðað.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. sunnudaginn 12. mars 2017 kl. 15:00. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu félagsins. Hægt er að senda framboðstilkynningar á veffangið [email protected]. Upplýsingar um frambjóðendur verða aðgengilegar á vefsíðunni www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund verða birt á vefsíðu félagsins, www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir, og liggja frammi á skrifstofu þess í Kringlunni 5, 103 Reykjavík.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14:30 á aðalfundardag. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 22. febrúar 2017.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
sjova.is
SJÓVÁ