Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Earnings Release 2020

Feb 11, 2021

2204_rns_2021-02-11_377115e8-cc59-45b1-a5a4-02e77aea22b0.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. febrúar 2021 – Fréttatilkynning

SJÓVÁ

Sjóvá – Ársuppgjör

5.320 m.kr. hagnaður á árinu 2020

Fjórði ársfjórðungur 2020

  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 581 m.kr. (4F 2019*: 265 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 2.475 m.kr. (4F 2019*: 562 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 2.982 m.kr. (4F 2019: 808 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 6,3% (4F 2019: 2,1%)
  • Samsett hlutfall 90,4% (4F 2019*: 96,9%)

12M 2020 og uppfærðar horfur

  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 1.968 m.kr. (12M 2019*: 2.370 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 3.960 m.kr. (12M 2019*: 2.040 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 5.320 m.kr. (12M 2019: 3.853 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 13,2% (12M 2019: 10,0%)
  • Samsett hlutfall 92,0% (12M 2019*: 91,2%)
  • Horfur fyrir árið 2021 gera ráð fyrir að samsett hlutfall verði um 92% og að hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.100 m.kr.

  • Ákveðið hefur verið að birta ekki horfur fyrir afkomu af fjárfestingarstarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu nemi alla jafna um 4% á ársgrundvelli til lengri tíma án vaxtatekna af viðskiptakröfum miðað við núverandi vaxtastigi og fjárfestingastefnu félagsins.

  • Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingarstarfsemi nema þær verði raktar til breytinga á óskráðum eignum eða verulegra breytinga á fjárfestingastefnu.

Hermann Björnsson, forstjóri:

Góð afkoma við krefjandi aðstæður

Styrkleikar félagsins komu bersýnilega í ljós við krefjandi aðstæður á árinu. Markvissar aðgerðir síðustu ára til þess að bæta vátryggingareksturinn halda áfram að skila árangri og fjárfestingastefna félagsins hefur reynst vel á sveiflukenndum verðbréfamörkuðum. Starfsfólk félagsins hefur sýnt mikla seiglu og aðlagast hratt nýju vinnuumhverfi án þess að það bitni á þjónustuupplifun. Mannauðurinn leggur grunninn að aukinni ánægju viðskiptavina okkar sem samkvæmt nýlegum mælingum hefur aldrei mælst meiri. Rekstur félagsins gekk afar vel á fjórða ársfjórðungi sem og á árinu í heild hvort sem litið er til vátryggingastarfsemi eða fjárfestingarstarfsemi og arðsemi eigin fjár nam 28,3% á árinu.

Stöðugur vátryggingarekstur og 1.300 m.kr. ráðstafað til viðskiptavina á árinu 2020

Afkoma ársins 2020 af vátryggingarekstri fyrir skatta nam 1.968 m.kr. og dregst lítillega saman á milli ára, en samsett hlutfall var 92% á árinu. Iðgjaldavöxtur nam 4,3% á fjórða ársfjórðungi og 1,0% á árinu í heild. Er hann einkum drifinn áfram af góðum vexti á einstaklingsmarkaði sem hefur vegið upp á móti samdrætti hjá fyrirtækjum innan ferðabjónustunnar. Pessi rekstrarniðurstaða verður að teljast afar sterk í ljósi sviptinga í efnahagslífinu á liðnu ári og jafnframt þar sem Sjóvá feldi í heild sinni niður bifreiðaiðgjöld einstaklinga í maí í kjólfar samdráttar í umferð og fækkunar tjóna. Nam sú niðurfelling 650 m.kr. og kemur til viðbótar þeim 640 m.kr. sem tjónlausir vildarviðskiptavinir okkar fengu greiddar í formi Stofn-endurgreiðslu á árinu, 26. árið í röð.

Fjárhæðir eru í milljónum króna

*samanburðarfjárhæðum fyrir árið 2019 hefur verið breytt í samræmi við leiðbeinandi tilmæli FME Sí nr. 1/2020


SJÔVÁ

Afkoma af fjárfestingarstarfsemi umfram væntingar

Afkoma ársins 2020 af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta nam 3.960 m.kr. Ávöxtun af fjárfestingareignum í stýringu nam 13,2% á árinu og vegur þar þyngst afkoma skráðra hlutabréfa sem þróaðist með afar jákvæðum hætti á síðari hluta ársins eftir miklar lækkanir vegna óvissu í kjólfar útbreiðslu Covid-19 síðasta vor. Eignir í stýringu námu 43,8 ma.kr. í lok ársins og hafa vaxið í takt við góða rekstrarafkomu sem og þar sem fallið var frá fyrirhugaðri arðgreiðslu vegna fjárhagsársins 2019.

Ánægðustu viðskiptavinir á vátryggingamarkaði, fjórða árið í röð

Sterk ímynd og staða félagsins á markaði var staðfest í janúar þegar niðurstöður ánægjuvogarinnar voru opinberaðar og í ljós kom að Sjóvá átti ánægðustu viðskiptavini á vátryggingamarkaði á árinu 2020, fjórða árið í röð. Fékk félagið jafnframt hæstu einkunn sem tryggingafélag hefur fengið í mælingum á ánægju og setur þannig ný viðmið í þjónustu við viðskiptavini á vátryggingamarkaði. Við erum afar þakklát fyrir þá viðurkenningu á þjónustustefnu félagsins sem felst í þessum niðurstöðum.

Samfélagslega ábyrgur rekstur – í fararbroddi í jafnréttismálum

Það er yfirlýst stefna félagsins að starfa í sátt við samfélagið og umhverfið og teljum við að samfélagslega ábyrgur rekstur skili sér í aukinni arðsemi til framtíðar. Við höfum metnað til að gera vel í þessum efnum og fengum viðurkenningu fyrir eitt af okkar áherslumálum á liðnu ári þegar við tókum á móti hvatningarverðlaunum jafnréttismála en þau eru árlega veitt fyrirtæki sem hefur stuðlað að jafnrétti á markvissan hátt í starfsemi sinni.

Sjóvá hefur um árabil verið aðalbakhjarl Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og hluti af Ólympíufjölskyldu ÍSÍ frá upphafi. Leitast er við að þeir fjármunir sem varið er til góðgerðamála styðji við hlutverk og stefnu Sjóvár. Í ljósi góðrar rekstrarafkomu á árinu 2020 var bætt enn frekar í samfélagslega styrki og fengu neyðarvarnir Rauða krossins m.a. styrk frá félaginu undir lok síðasta árs til þess að þjálfa viðbragðshópa og kaupa neyðarbúnað.

Tillaga stjórnar um arð og áframhaldandi endurkaup eigin hluta

Arðgreiðslustefna félagsins miðar við að greiða að lágmarki 50% af hagnaði hvers árs til hluthafa í formi arðs, að því gefnu að félagið haldist áfram fjárhagslega sterkt. Samþykkt var á hluthafafundi þann 25. nóvember síðastliðinn að falla frá fyrirhugaðri arðgreiðslu vegna ársins 2019 í ljósi þeirra aðstæðna sem voru uppi í þjóðfélaginu vegna Covid-19. Tilmæli eftirlitsaðila varðandi frestun arðgreiðslna og/eða endurkaupa eigin hluta frá því í apríl 2020 voru þá enn í gildi. Þann 13. janúar sl. voru tilmælin endurskoðuð og þar brýnt fyrir vátryggingafélögum að gæta ýtrustu varfærni við stýringu eiginfjár vegna þeirrar óvissu sem ríkir í efnahagslífinu af völdum faraldursins. Í ljósi þess hefur stjórn tekið ákvörðun um að leggja til að greiddur verði arður sem nemur 50% af hagnaði ársins eða um 2.650 m.kr. (1,99 kr./hlut).

Fjárhagslegur styrkur félagsins er mikill líkt og ársreikningur félagsins sýnir og er gjaldbolshlutfall félagsins 1,67 eftir fyrirhugaða arðgreiðslu en samkvæmt lögum skal gjaldbolíð ekki vera lægra en 1,00. Gjaldbolshlutfallið er nálægt efri mörkum áhættuvilja stjórnar og gjaldbolshlutfall verður fært til fyrra horfs þegar óvissa minnkar og kann stjórn að boða til hluthafafundar í þeim tilgangi. Eiginfjárhlutfall eftir fyrirhugaða arðgreiðslu er 33,1%, fjárhagsstaða félagsins er traust og félagið eftir sem áður fært um að standa þétt við bakið á viðskiptavinum og mæta ófyrirséðum áföllum í rekstri. Ákvörðun stjórnar um útgreiðslu arðs er gerð í fullu samráði við eftirlitsaðila á markaði.

Stjórn leggur til við aðalfund að endurnýja heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum í félaginu.

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÕVÁ

Beint streymi frá kynningarfundi 11. febrúar kl. 16:15

Kynningu á afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi og árinu 2020 verður streymt beint á slóðinni
https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-4f-2020/. Í ljósi aðstæðna verður fundurinn ekki opinn fjárfestum og markaðsaðilum en vilji aðilar bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið [email protected] á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok fundarins.

Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur 2021 – 12. mars 2021
1F 2021 – 12. maí 2021
2F 2021 – 19. ágúst 2021
3F 2021 – 28. október 2021
4F 2021 – 10. febrúar 2022
Aðalfundur 2022 – 11. mars 2022

The News Announcement and Investors' Presentation in English will be available on the website www.sjova.is

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða [email protected].

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓVÁ

Helstu niðurstöður og lykiltölur

4F 2020 4F 2019* % 12M 2020 12M 2019* %
Vátryggingastarfsemi
Iðgjöld tímabilsins 5.455 5.231 4,3% 20.831 20.633 1,0%
Hluti endurtryggj. í íðgjaldatekjum -222 -225 -1,7% -1.015 -932 8,9%
Eigin íðgjöld 5.234 5.005 4,6% 19.817 19.701 0,6%
Fjárfestingatekjur af vátryggingarekstri 30 76 -60,2% 175 441 -60,3%
Aðrar tekjur 89 55 61,4% 218 204 6,8%
Heildartekur af vátryggingarekstri 5.353 5.136 4,2% 20.209 20.345 -0,7%
Tjón tímabilsins -3.633 -3.994 -9,0% -14.720 -14.433 2,0%
Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins -51 131 496 377 31,6%
Eigin tjón -3.684 -3.863 -4,6% -14.223 -14.056 1,2%
Rekstarkostnaður af vátryggingarekstri -1.088 -1.008 8,0% -4.018 -3.918 2,5%
Heildargjöld af vátryggingarekstri -4.772 -4.871 -2,0% -18.242 -17.975 1,5%
Hagnaður af vátryggingarekstri 581 265 1.968 2.370 -17,0%
Fjárfestingarstarfsemi
Fjárfestingatekjur af fjárfestingarstarfsemi 2.600 761 5.099 3.200 59,4%
Tæknil. vaxta- og gengisbr.vátryggingask. -68 -110 -38,3% -678 -805 -15,8%
Rekstarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi -57 -88 -35,4% -461 -355 29,9%
Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi 2.475 562 3.960 2.040 94,1%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 3.056 827 5.928 4.410 34,4%
Tekjuskattur -74 -19 -608 -557 9,2%
Heildarhagnaður tímabilsins 2.982 808 5.320 3.853 38,1%
Tjónahlutfall 66,6% 76,4% 70,7% 70,0%
Endurtryggingahlutfall 3,9% 1,3% 2,0% 2,2%
Kostnaðarhlutfall 19,9% 19,3% 19,3% 19,0%
Samsett hlutfall 90,4% 96,9% 92,0% 91,2%
Rekstarrhlutfall 89,9% 95,5% 91,2% 89,2%
Arðsemi eigin fjár eftir skatta á ársgrundv. 63,3% 21,5% 28,3% 25,6%
Arðsemi eigin fjár fyrir skatta á ársgrundv. 64,9% 22,0% 31,5% 29,3%
Hagnaður á hlut 2,22 0,62 3,98 2,82
Niðurstaða endurtrygginga -211 -67 -416 -455
Vátryggingaskuld 29.867 27.599 29.867 27.599
Heildareignir 59.261 50.984 59.261 50.984
Eigið fé 21.364 16.294 21.364 16.294
Gjaldbolshlutfall 1,67 1,67 1,67 1,67
Lágmarksfjármagnshlutfall 4,40 4,08 4,40 4,08

Samstæðureikningur Sjóvár fyrir árið 2020 var sambykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 11. febrúar 2021

Fjárhæðir eru í milljónum króna

*samanburðarfjárhæðum fyrir árið 2019 hefur verið breytt í samræmi við leiðbeinandi tilmæli FME Sí nr. 1/2020