AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2021
May 12, 2021
2204_rns_2021-05-12_b9f14ccd-32fc-43bd-9d7f-0bcc56617b29.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- mai 2021 – Fréttatilkynning
SJÓVÁ
Sjóvá – Árshlutauppgjör
2.065 m.kr. hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2021
Fyrsti ársfjórðungur 2021 og uppfærðar horfur
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 556 m.kr. (1F 2020: 185 m.kr.)
- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 1.652 m.kr. (1F 2020: -552 m.kr.)
- Hagnaður tímabilsins 2.065 m.kr. (1F 2020: -465 m.kr.)
- Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 3,8% (1F 2020: -0,2%)
- Samsett hlutfall 91,4% (1F 2020: 98,5%)
- Horfur fyrir árið 2021 eru óbreyttar og gera ráð fyrir að samsett hlutfall verði um 92% og að hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.100 m.kr.
- Horfur til næstu 12 mánaða gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.200 m.kr. og samsett hlutfall um 92%.
- Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu nemi alla jafna um 4% á ársgrundvelli til lengri tíma án vaxtatekna af viðskiptakröfum miðað við núverandi vaxtastigi og fjárfestingastefnu félagsins.
- Miðað við ávöxtun fjárfestingareigna það sem af er ári má vænta að ávöxtun nemi um 8,5% á árinu 2021.
Hermann Björnsson, forstjóri:
Afkoman á fyrsta ársfjórðungi er afar góð og einkennist af áframhaldandi heilbrigðum iðgjaldavexti og mjög góðri afkomu af fjárfestingastarfsemi. Ávöxtun á hlutabréfamörkuðum hefur verið gríðarlega góð á fjórðungnum og var afkoman af hlutabréfasafni í takt við það og raunar langt yfir því sem alla jafna má vænta. Fjárfestingatekjur námu 1.752 m.kr. og ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nám 3,8% á tímabilinu.
Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta nám 556 m.kr. og var samsett hlutfall 91,4%. Þar hefur mikið að segja heilbrigður iðgjaldavöxtur á milli tímabila þar sem eigir iðgöld vaxa um 6,3% á milli ára og vel umfram eigir tjón. Iðgjaldavöxturinn er drifinn áfram af vexti á einstaklingsmarkaði á meðan iðgöld á fyrirtækjamarkaði dragast saman á milli tímabila. Einnig ber að hafa í huga að tíðarfarið í ár á þessum ársfjórðungi var gott og hefur jákvæð áhrif á afkomu fjórðungsins. Allt frá 2016 eða 5 ár í röð hefur afkoma af vátryggingastarfsemi verið jákvæð, sem er í takt við það sem stjórnendur hafa lagt ríka áherslu á allt frá því að félagið var skráð á hlutabréfamarkað.
Á dögunum kynntum við uppfærslu á kaskótryggingu, þegar undirvögnum var bætt inn í vátryggingaverndina. Pannig eru tjón þegar t.d. grjót skýst upp undir bilinn og skemmir undirvagn bótaskyld hjá Sjóvá þegar ekið er á tilgreindum vegum. Þetta er sérstaklega mikilvæg viðbót fyrir eigendur rafbila, en tjón á undirvögnum þeirra geta verið sérstaklega dýr ef rafhlaðan skemmst. Með þessu erum við að koma til móts við þá öru þróun sem er að eiga sér stað á ókutækjamarkaði og stígum ákveðið inn í framtíðina. Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið mjög góðar.
Í samstarfi við Landsbjörgu og Stokk er Sjóvá að setja í loftið app sem er ætlað að gera fólki á ferð um landið, bæði Íslendingum og ferðamönnum, kleift að fylgjast með aðstæðum á vegum á þeirri leið sem fyrirhuguð er. Appið lætur vita ef færð á vegum spillist á meðan á ferðalaginu stendur. Okkar vonir standa til að þetta geti komið í veg fyrir að farið sé út í aðstæður sem reynast geta hættulegar. Um er að ræða nytsamlega og árangursríka leið til að aðstoða ferðamenn á leið um landið auk þess forvarnargildis sem þetta felur í sér.
Enn og aftur ber að þakka starfsmönnum fyrir þeirra framlag sem leitt hefur af sér áframhaldandi vöxt í iðgjöldum og ný viðmið í þjónustu við okkar viðskiptavini.
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SJÔVÁ
Horfur
Horfur fyrir árið 2021 eru óbreyttar og gera ráð fyrir að samsett hlutfall verði um 92% og að hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.100 m.kr. Horfur til næstu 12 mánaða (2F 2021 – 1F 2022) gera ráð fyrir að hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta nemi um 2.200 m.kr. og að samsett hlutfall verði um 92%. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu nemi alla jafna um 4% á ári til lengri tíma. Miðað við ávöxtun fjárfestingareigna það sem af er ári má vænta að ávöxtunin nemi um 8,5% á árinu 2021.
Kynningarfundur 12. maí kl. 16:15
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund 12. maí kl. 16.15 þar sem Hermann Björnsson forstjóri mun kynna afkomu félagsins á fyrsta ársfjörðungi 2021. Fundurinn fer fram í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Þeir sem sækja ætla fundinn eru beðnir um að skrá sig fyrirfram til þátttóku í gegnum netfangið fjä[email protected]. Verður kynningunni einnig streymt beint á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning/. Vilji aðilar bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið fjä[email protected] á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum
Fjárhagsdagatal
2F 2021 – 19. ágúst 2021
3F 2021 – 28. október 2021
4F 2021 – 10. febrúar 2022
Aðalfundur 2022 – 11. mars 2022
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða fjä[email protected].
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SJÖVA
Helstu niðurstöður og lykiltölur
| 1F 2021 | 1F 2020 | % | |
|---|---|---|---|
| Vátryggingastarfsemi | |||
| Iðgjöld tímabilsins | 5.563 | 5.284 | 5,3% |
| Hluti endurtryggj. í iðgjaldatekjum | -286 | -321 | -11,0% |
| Eigin iðgjöld | 5.277 | 4.963 | 6,3% |
| Fjárfestingatekjur af vátryggingarekstri | 41 | 73 | -43,4% |
| Aðrar tekjur | 46 | 49 | -5,8% |
| Heildartekur af vátryggingarekstri | 5.365 | 5.085 | 5,5% |
| Tjón tímabilsins | -3.793 | -4.185 | -9,4% |
| Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins | 68 | 312 | |
| Eigin tjón | -3.725 | -3.873 | -3,8% |
| Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri | -1.084 | -1.027 | 5,1% |
| Heildargjöld af vátryggingarekstri | -4.809 | -4.900 | -2,0% |
| Hagnaður af vátryggingarekstri | 556 | 185 | |
| Fjárfestingarstarfsemi | |||
| Fjárfestingatekjur af fjárfestingarstarfsemi | 1.710 | -30 | |
| Tæknil. vaxta- og gengisbr.vátryggingask. | 35 | -346 | |
| Rekstrarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi | -94 | -176 | -45,4% |
| Hagnaður/tap af fjárfestingarstarfsemi | 1.652 | -552 | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 2.208 | -366 | |
| Tekjuskattur | -143 | -99 | |
| Heildarhagnaður/tap tímabilsins | 2.065 | -465 | |
| Tjónahlutfall | 68,2% | 79,2% | |
| Endurtryggingahlutfall | 3,7% | -0,1% | |
| Kostnaðarhlutfall | 19,5% | 19,4% | |
| Samsett hlutfall | 91,4% | 98,5% | |
| Rekstrarhlutfall | 90,1% | 96,6% | |
| Arðsemi eigin fjár eftir skatta á ársgrundv. | 39,4% | -11,7% | |
| Arðsemi eigin fjár fyrir skatta á ársgrundv. | 42,1% | -9,2% | |
| Hagnaður á hlut | 1,56 | -0,35 | |
| Niðurstaða endurtrygginga | -205 | 7 | |
| Vátryggingaskuld | 33.553 | 31.740 | |
| Heildareignir | 63.999 | 54.631 | |
| Eigið fé | 20.585 | 15.578 | |
| Gjaldbolshlutfall | 1,70 | 1,43 | |
| Lágmarksfjármagnshlutfall | 4,46 | 3,65 |
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir fyrsta ársfjörðung 2021 var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 12. mai 2021. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
Fjárhæðir eru í milljónum króna