Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Earnings Release 2021

Aug 17, 2021

2204_rns_2021-08-17_9586c5de-c5fd-4635-976c-d2fed2dd791d.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. ágúst 2021 – Fréttatilkynning

SJÓVÁ

Sjóvá – Árshlutauppgjör

5.179 m.kr. hagnaður á fyrstu sex mánuðum ársins 2021

Annar ársfjörðungur 2021

  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 589 m.kr. (2F 2020: 213 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 2.716 m.kr. (2F 2020: 1.466 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 3.114 m.kr. (2F 2020: 1.538 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 6,1% (2F 2020: 4,8%)
  • Samsett hlutfall 91,2% (2F 2020: 96,8%)

6M 2021 og uppfærðar horfur

  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 1.145 m.kr. (6M 2020: 398 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 4.368 m.kr. (6M 2020: 914 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 5.179 m.kr. (6M 2020: 1.072 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 10,1% (6M 2020: 4,6%)
  • Samsett hlutfall 91,3% (6M 2020: 97,7%)
  • Horfur fyrir árið 2021 gera ráð fyrir að samsett hlutfall verði um 92% (óbreytt) og að hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.200 m.kr. (var 2.100 m.kr.)
  • Horfur til næstu 12 mánaða (3F 2021 – 2F 2022) gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði um 2.500 m.kr. (var 2.200 m.kr.) og samsett hlutfall um 91% (var 92%).

  • Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu nemi alla jafna um 5% á ársgrundvelli til lengri tíma án váxtatekna af viðskiptakröfum miðað við núverandi váxtastig og fjárfestingastefnu félagsins.

  • Miðað við ávöxtun fjárfestingareigna það sem af er ári má vænta að ávöxtun nemi um 13,5% á árinu 2021.

Hermann Björnsson, forstjóri:

„Hagnaður á fyrstu sex mánuðum ársins nam 5.179 m.kr. og er að stórum hluta tilkominn vegna góðrar ávöxtunar á eignasafni félagsins sem nam 10% á tímabilinu. Þróun á eignamörkuðum hefur verið hagstæð og langt umfram væntingar. Hafa þarf í huga að miklar sveiflur einkenna afkomu af fjárfestingarstarfsemi yfir lengri tíma.

Vátryggingareksturinn skilaði mjög góðri afkomu og einkenndist af áframhaldandi kröftugum iðgjaldavexti og hagstæðri tjónapróun. Iðgjaldavöxtur nam 16% á fyrstu 6 mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra en vert er að benda á að í fyrra var felldur niður einn gjalddagi í ókutækjatryggingum einstaklinga sem nam 650 m.kr. Iðgjöld vaxa bæði á einstaklingsmarkaði og fyrirtækjamarkaði en þar sjáum við viðsnúning á milli fjörðunga og ára eftir samdrátt undanfarið. Iðgjaldavöxtur á fyrirtækjamarkaði er bæði tilkominn vegna nýrra viðskipta og ánægjulegrar þróunar hjá ferðabjónustuaðilum þar sem sumarið fór vel af stað.

Fjárhagslegur styrkur félagsins hefur aukist umtalsvert í ljósi góðrar rekstrarafkomu auk þess sem varfærni hefur verið gætt við ákvörðun arðs. Í júlí var tilkynnt um að óskað hefði verið eftir heimild Fjármálaeftirlits Sí til lækkunar hlutafjár fyrir 2.500 m.kr. Tilgangur hlutafjárlaekkunarinnar er að færa fjármagnsskipan að áhættuvilja stjórnar en gjaldbolshlufallið var í lok tímabilsins 1,79 sem liggur fyrir ofan efri mörk áhættuviljans.

Horfum fyrir árið 2021 hefur verið breytt lítillega hvað varðar afkomu af vátryggingastarfsemi fyrir skatta úr 2.100 m.kr. í um 2.200 m.kr. Einnig hefur horfum til næstu 12 mánaða verið breytt þannig að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verður um 2.500 m.kr. í stað 2.200 m.kr. áður og samsett hlutfall um 91% í stað 92%.“

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓVÁ

Kynningarfundur 17. ágúst kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og vefstreymi

Hermann Björnsson forstjóri mun kynna afkomu félagsins og er markaðsaðilum boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15. Kynningunni verður jafnframt streymt beint á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-2f-2021/. Vilji aðilar sem horfa á kynninguna í streymi bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið [email protected] á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum

Fjárhagsdagatal

3F 2021 – 28. október 2021

4F 2021 – 10. febrúar 2022

Aðalfundur 2022 – 11. mars 2022

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða [email protected].

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓVÁ

Helstu niðurstöður og lykiltölur

2F 2021 2F 2020 % 6M 2021 6M 2020 %
Vátryggingastarfsemi
Iðgjöld tímabilsins 5.815 4.539 28,1% 11.378 9.823 15,8%
Hluti endurtryggj. í íðgjaldatekjum -251 -251 0,0% -537 -571 -6,0%
Eigin íðgjöld 5.564 4.288 29,8% 10.841 9.251 17,2%
Fjárfestingatekjur af vátryggingarekstri 49 42 16,7% 91 115 -21,2%
Aðrar tekjur 83 48 72,9% 130 97 33,1%
Heildartekjur af vátryggingarekstri 5.696 4.379 30,1% 11.062 9.464 16,9%
Tjón tímabilsins -4.051 -3.242 25,0% -7.844 -7.427 5,6%
Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins 41 84 -51,2% 109 396 -72,4%
Eigin tjón -4.010 -3.158 27,0% -7.735 -7.032 10,0%
Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri -1.098 -1.007 9,0% -2.182 -2.043 6,8%
Heildargjöld af vátryggingarekstri -5.108 -4.165 22,6% -9.916 -9.065 9,4%
Hagnaður af vátryggingarekstri 589 213 - 1.145 398 -
Fjárfestingastarfsemi
Fjárfestingatekjur af fjárfestingastarfsemi 2.714 1.812 49,8% 4.424 1.782 -
Tæknil. vaxta- og gengisbr.vátryggingask. 106 -228 - 142 -574 -
Rekstrarkostnaður af fjárfestingastarfsemi -103 -118 -12,7% -197 -294 -33,0%
Hagnaður af fjárfestingastarfsemi 2.716 1.466 85,3% 4.368 914 -
Hagnaður fyrir tekjuskatt 3.305 1.679 96,8% 5.513 1.313 -
Tekjuskattur -192 -142 35,2% -335 -240 39,6%
Heildarhagnaður tímabilsins 3.114 1.538 - 5.179 1.072 -
Tjónahlutfall 69,7% 71,4% 68,9% 75,6%
Endurtryggingahlutfall 2,7% 3,2% 3,2% 1,4%
Kostnaðarhlutfall 18,9% 22,2% 19,2% 20,7%
Samsett hlutfall 91,2% 96,8% 91,3% 97,7%
Rekstrarhlutfall 90,0% 95,4% 90,1% 96,0%
Arðsemi eigin fjár eftir skatta á ársgrundv. 55,8% 36,8% 46,4% 12,8%
Arðsemi eigin fjár fyrir skatta á ársgrundv. 59,3% 40,2% 49,4% 15,7%
Hagnaður á hlut 2,37 1,15 3,94 0,80
Niðurstaða endurtrygginga -156 -146 -361 -139
Vátryggingaskuld 34.312 31.494 34.312 31.494
Heildareignir 67.502 56.658 67.502 56.658
Eigið fé 23.256 17.116 23.256 17.116
Gjaldbolshlutfall 1,79 1,56 1,79 1,56
Lágmarksfjármagnshlutfall 4,47 3,93 4,47 3,93

Samstæðureikningur Sjóvár fyrir annan ársfjörðung 2021 var samþykkur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 17. ágúst 2021. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Fjárhæðir eru í milljónum króna