Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Earnings Release 2018

Feb 15, 2019

2204_rns_2019-02-15_e0c024cf-3bd3-4be3-99b9-6afc9e48c15c.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. febrúar 2019 – Fréttatilkynning

SJÓVÁ

Sjóvá – Ársuppgjör

Hagnaður 652 m.kr. á árinu 2018

Árið 2018 og horfur

  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 1.631 m.kr. (12M 2017: 1.158 m.kr.)
  • Tap af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 679 m.kr. (12M 2017: 927 m.kr. hagnaður)
  • Heildarhagnaður tímabilsins 652 m.kr. (12M 2017: 1.746 m.kr.)
  • Ávöxtun eignasafns félagsins 0,9% (12M 2017: 5,9%)
  • Samsett hlutfall 97,4% (12M 2017: 99,4%)
  • Horfur fyrir árið 2019 eru að samsett hlutfall verði um 95% og að afkoma fyrir skatta verði um 3.300 m.kr.

Fjórði ársfjórðungur 2018

  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 480 m.kr. (4F 2017: 274 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 6 m.kr. (4F 2017: 310 m.kr.)
  • Heildarhagnaður tímabilsins 392 m.kr. (4F 2017: 416 m.kr.)
  • Ávöxtun eignasafns félagsins 1,0% (4F 2017: 1,7%)
  • Samsett hlutfall 96,5% (4F 2017: 99,6%)

Hermann Björnsson, forstjóri:

„Prátt fyrir að liðið ár hafi verið tjónapungt hefur heilbrigður iðgjaldavöxtur gert það að verkum að afkoma af vátryggingarekstri var betri en áætanir gerðu ráð fyrir. Samsett hlutfall fyrir 4F 2018 nam 96,5% sem er rúmum 3 prósentustigum lægra en á 4F 2017. Samsett hlutfall ársins 2018 nam 97,4% og lækkar um 2 prósentustig á milli ára. Afkoma af vátryggingastarfsemi eykst þannig um 40% á milli ára við krefjandi aðstæður.

Afkoma af fjárfestingarstarfsemi dregur niður heildarafkomu ársins 2018 og var töluvert undir væntingum á árinu. Það skýrist fyrst og fremst af tapi á skráðum og óskráðum hlutabréfum en skuldabréf skiluðu einnig lægri ávöxtun en vænst var. Fjárfestingatekjur ársins voru 299 m.kr. sem samsvarar 0,9% ávöxtun.

Árið 2018 var viðburðaríkt ár í 100 ára sögu félagsins en Sjóvátryggingarfélag Íslands, forveri Sjóvár, var stofnað 20. október 1918. Sjóvá mældist efst tryggingafélaga í íslensku ánægjuvoginni annað árið í röð og rammar inn þá góðu vegferð sem við höfum verið á. Stigin voru mikilvæg skref í stafrænnir þróun félagsins og undir lok árs buðum við, fyrst íslenskra tryggingafélaga, sölu og ráðgjöf á líf- og sjúkðomatryggingum á netinu. Opnast þannig nýjar leiðir í sölu, markaðssetningu og samtali við viðskiptavini sem þróaðar verða áfram á næstunni.

Með áframhaldandi kröftugum iðgjaldavexti stefnum við á að ná langtímamarkmiði í samsettu hlutfalli á árinu 2019 eða um 95% og að afkoma fyrir skatta verði um 3.300 m.kr.“

Stjórn leggur til að hluthafar fái greiddan arð fyrir rekstrarárið 2018 sem nemur 0,47 kr. á hlut eða um 650 m.kr. Stjórn leggur til við aðalfund að viðhalda heimild til endurkaupa eigin hluta.

Kynningarfundur 15. febrúar kl. 16:15

Boðið er til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi 2018, föstudaginn 15. febrúar kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjórið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslöðinni www.sjova.is/afkomukynningar. The News Announcement and Investors’ Presentation in English will be available on the website www.sjova.is

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða fjá[email protected].

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Helstu niðurstöður og lykiltölur

SJÓVÁ

4F 2018 4F 2017 % 12M 2018 12M 2017 %
Vátryggingastarfsemi
Iðgjöld tímabilsins 4.684 4.211 11,2% 18.165 16.383 10,9%
Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum -253 -214 18,2% -947 -845 12,1%
Eigin iðgjöld 4.431 3.997 10,9% 17.218 15.539 10,8%
Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri 314 259 21,3% 1.165 1.062 9,7%
Aðrar tekjur 85 45 87,7% 105 73 44,6%
Heildartekjur af vátryggingarekstri 4.830 4.301 12,3% 18.489 16.674 10,9%
Tjón tímabilsins -3.839 -3.177 20,8% -14.085 -12.160 15,8%
Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins 481 80 499,9% 998 259 285,5%
Eigin tjón -3.357 -3.096 8,4% -13.087 -11.901 10,0%
Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri -993 -931 6,7% -3.770 -3.614 4,3%
Heildargjöld af vátryggingarekstri -4.350 -4.027 8,0% -16.858 -15.515 8,6%
Hagnaður af vátryggingarekstri 480 274 75,4% 1.631 1.158 40,8%
Fjárfestingarstarfsemi
Fjárfestingartekjur af fjárfestingarstarfsemi 71 390 -81,7% -346 1.202 -
Rekstrarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi -65 -79 -18,0% -333 -275 21,2%
Hagnaður/tap af fjárfestingarstarfsemi 6 310 -98,1% -679 927 -
Hagnaður fyrir tekjuskatt 486 584 -16,7% 952 2.085 -54,3%
Tekjuskattur -94 -169 -44,3% -300 -339 -11,5%
Heildarhagnaður tímabilsins 392 416 -5,6% 652 1.746 -62,7%
4F 2018 4F 2017 12m 2018 12m 2017
Tjónahlutfall 81,9% 75,4% 77,5% 74,2%
Endurtryggingahlutfall -6,7% 2,1% -0,9% 3,1%
Tjóna- og endurtryggingahlutfall 75,3% 77,5% 76,7% 77,4%
Kostnaðarhlutfall 21,2% 22,1% 20,8% 22,1%
Samsett hlutfall 96,5% 99,6% 97,4% 99,4%
Ávöxtun eigin fjár 10,8% 10,2% 4,5% 10,7%
Hagnaður á hlut 0,27 0,29 0,46 1,19
Eigið fé 13.827 15.206 13.827 15.206
Gjaldpolshlutfall fyrir arð 1,56 1,64 1,56 1,64
Gjaldpolshlutfall eftir arð 1,49 1,48 1,49 1,48

Samstæðureikningur Sjóvár fyrir árið 2018 var sampykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 15. febrúar 2019.

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÖVA

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur 15. mars 2019
1F 2019 – 16. mai 2019
2F 2019 – 22. ágúst 2019
3F 2019 – 31. október 2019
4F 2019 – 13. febrúar 2020
Aðalfundur 12. mars 2020

Fjárhæðir eru í milljónum króna