AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2019
May 16, 2019
2204_rns_2019-05-16_3e3b0075-595a-4199-8f89-1508c0d0247d.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- mai 2019 – Fréttatilkynning
SJÓVÁ
Sjóvá – Árshlutauppgjör
Hagnaður 1.053 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins 2019
Fyrsti ársfjórðungur 2019 og uppfærðar horfur
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 411 m.kr. (1F 2018: 396 m.kr.)
- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 769 m.kr. (1F 2018: 422 m.kr.)
- Heildarhagnaður tímabilsins 1.053 m.kr. (1F 2018: 749 m.kr.)
- Ávöxtun eignasafns félagsins 3,5% (1F 2018: 2,0%)
- Samsett hlutfall 98,1% (1F 2018: 97,2%)
- Uppfærðar horfur fyrir árið 2019 eru að samsett hlutfall verði um 95% (óbreytt) og að afkoma fyrir skatta verði um 4.200 m.kr.
- Uppfærðar horfur taka mið af raunafkomu í apríl.
- Horfur fyrir næstu 12 mánuði (2F 2019 – 1F 2020) eru að samsett hlutfall verði um 95% og að afkoma fyrir skatta verði um 3.800 m.kr.
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár á fyrsta ársfjórðungi nam 1.053 m.kr. sem er 41% aukning frá fyrra ári. Niðurstaðan er afar ánægjuleg hvort sem litið er til vátryggingarekstrar eða fjárfestinga.
Eigin iðgjöld vaxa um 13% frá 2018 eftir að hafa vaxið um 10% frá fyrsta fjórðungi 2017. Þessi sterki vöxtur undangengin ár hefur stuðlað að sífellt bættum vátryggingarekstri með lægra kostnaðarhlutfalli og bættu samsettu hlutfalli. Þó samsett hlutfall sé nú að vaxa lítillega á milli 1F 2018 og 1F 2019 úr 97,2% í 98,1% þá reiknum við með að birtar horfur okkar um 95% samsett hlutfall gangi eftir.
Á sveiflukenndum fjárfestingamörkuðum hefur það verið yfirlýst markmið okkar að byggja ekki afkomuna um of á þeim heldur að skila jákvæðri afkomu af vátryggingastarfsemi og það hefur okkur tekist undanfarna 12 fjórðunga sem verður að teljast afar jákvætt og til marks um styrkan og sjálfðæran grunnrekstur. Afkoma ökuteíkja er stöðugt til skoðunar og hreyfast þeir mælikvarðar í jákvæða átt þó ekki séu þeir komnir á ásættanlegan stað.
Ávöxtun eignasafns félagsins var umfram væntingar á fjórðungnum, einkum vegna góðrar afkomu af skráðum hlutabréfum. Horfur félagsins um afkomu fyrir skatta hafa því verið uppfærðar úr 3.300 m.kr. í um 4.200 m.kr. og taka mið af þróun á eignamörkuðum til loka apríl.
Horfur félagsins til næstu tólf mánaða (2F 2019 – 1F 2020) eru að samsett hlutfall verði um 95% og að afkoma fyrir skatta verði um 3.800 m.kr.“
Kynningarfundur 16. mai kl. 16:15
Boðið er til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2019, fimtudaginn 16. mai kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjórið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni
www.sjova.is/afkomukynningar. The News Announcement and Investors’ Presentation in English will be available on the website www.sjova.is
Fjárhagsdagatal
2F 2019 – 22. ágúst 2019
3F 2019 – 31. október 2019
4F 2019 – 13. febrúar 2020
Aðalfundur 12. mars 2020
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða [email protected].
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Helstu niðurstöður og lykiltölur
SJÓVÁ
| 1F 2019 | 1F 2018 | % | |
|---|---|---|---|
| Vátryggingastarfsemi | |||
| Iðgjöld tímabilsins | 4.798 | 4.251 | 12,9% |
| Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum | -235 | -212 | 10,5% |
| Eigin iðgjöld | 4.563 | 4.039 | 13,0% |
| Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri | 291 | 278 | 4,7% |
| Aðrar tekjur | 37 | 8 | 353,6% |
| Heildartekjur af vátryggingarekstri | 4.891 | 4.325 | 13,1% |
| Tjón tímabilsins | -3.554 | -3.044 | 16,8% |
| Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins | 81 | 46 | 74,3% |
| Eigin tjón | -3.474 | -2.998 | 15,9% |
| Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri | -1.007 | -931 | 8,2% |
| Heildargjöld af vátryggingarekstri | -4.480 | -3.929 | 14,0% |
| Hagnaður af vátryggingarekstri | 411 | 396 | 3,7% |
| Fjárfestingarstarfsemi | |||
| Fjárfestingartekjur af fjárfestingarstarfsemi | 867 | 515 | 68,4% |
| Rekstrarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi | -98 | -93 | 4,9% |
| Hagnaður/tap af fjárfestingarstarfsemi | 769 | 422 | 82,4% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 1.180 | 818 | 44,3% |
| Tekjuskattur | -127 | -69 | 83,8% |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 1.053 | 749 | 40,6% |
| 1F | 1F | ||
| 2019 | 2018 | ||
| Tjónahlutfall | 74,1% | 71,6% | |
| Endurtryggingahlutfall | 3,0% | 3,7% | |
| Tjóna- og endurtryggingahlutfall | 77,1% | 75,3% | |
| Kostnaðarhlutfall | 21,0% | 21,9% | |
| Samsett hlutfall | 98,1% | 97,2% | |
| Ávöxtun eigin fjár | 30,0% | 20,2% | |
| Hagnaður á hlut | 0,76 | 0,53 | |
| Eigið fé | 14.228 | 14.459 | |
| Gjaldbolshlutfall | 1,43 | 1,51 |
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir fyrsta ársfjörðung 2019 var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 16. maí 2018. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
Fjárhæðir eru í milljónum króna