Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Earnings Release 2017

Feb 15, 2018

2204_rns_2018-02-15_49d9d4b0-a627-4bed-8da4-2564e2576174.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. febrúar 2018 – Fréttatilkynning

SJÓVÁ

Sjóvá– Ársuppgjör

Hagnaður 1.746 m.kr. á árinu 2017

Árið 2017 og horfur

  • Heildarhagnaður 1.746 m.kr. (2016: 2.690 m.kr.)
  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 1.158 m.kr. (2016: 646 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 927 m.kr. (2016: 2.419 m.kr.)
  • Ávöxtun eignasafns félagsins 5,9% (2016: 10,1%)
  • Hagnaður á hlut 1,19 kr. (2016: 1,75 kr.)
  • Horfur fyrir árið 2018 eru að samsett hlutfall verði um 96% (1F: 98%, 2F: 97%, 3F: 95%, 4F: 96%) og að hagnaður fyrir skatta verði um 2.800 m.kr.
  • Tilkynnt verða frávik umfram 5 prósentustig í samsettu hlutfalli innan fjórðunga.

Fjórði ársfjórðungur 2017

  • Heildarhagnaður 416 m.kr. (4F 2016: 1.124 m.kr.)
  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 274 m.kr. (4F 2016: 176 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 310 m.kr. (4F 2016: 1.113 m.kr.)
  • Ávöxtun eignasafns félagsins 1,7% (4F 2016: 3,8%)
  • Hagnaður á hlut 0,29 kr. (4F 2016: 0,73)

Hermann Björnsson, forstjóri:

„Vátryggingarekstur styrkist frá fyrra ári við krefjandi aðstæður þar sem tjónakostnaður eykst í takt við aukin umsvif í þjóðfélaginu. Hagnaður af vátryggingastarfsemi nær tvöfaldast á milli ára, fer úr 646 m.kr. 2016 í 1.158 m.kr árið 2017. Samsett hlutfall ársins nemur 99,4% samanborið við 100,9% á árinu 2016. Segja má að afkoma af fjárfestingarstarfsemi hafi verið viðunandi sé lítið til þess að verðbréfamarkaðir voru mjög sveiflukenndir á árinu og skiluðu um tíma neikvæðri ávöxtun. Við þessar aðstæður er ánægjulegt að vátryggingarekstur skili bættri afkomu.

Við getum með stolti greint frá því að Sjóvá var í fyrsta sinn efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni á árinu 2017. Við erum bakklát okkar viðskiptavinum fyrir þá niðurstöðu en árangurinn er uppskera markvissrar vinnu alls starfsfólks. Starfsandi hjá Sjóvá mælist með því allra hæsta sem þekkist hér á landi og byggir m.a. á fullkomnu launajafnrétti og jafnri kynjaskiptingu. Unnið verður að áframhaldandi styrkingu vátryggingarekstrar á árinu auk þess sem lögð verður áhersla á þróun stafræna lausna til að bæta enn frekar þjónustu og auka möguleika okkar viðskiptavina til að eiga við okkur samskipti með þeim hætti sem þeir kjósa.“

Stjórn leggur til að hluthafar fái greiddan arð fyrir rekstrarárið 2017 sem nemur 1,05 kr. á hlut eða 1.500 m.kr. Stjórn leggur til við aðalfund endurkaupaáætlun.

Kynningarfundur 15. febrúar kl. 16:15

Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi 2017, fimmtudaginn 15. febrúar kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjórið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar

The News Announcement and Investors' Presentation in English will be available on the website www.sjova.is

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða [email protected].

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÓVÁ

Helstu niðurstöður og lykiltölur

4F 4F % 12M 12M %
2017 2016 2017 2016
Vátryggingastarfsemi
Iðgjöld tímabilsins 4.211 4.051 3,9% 16.383 15.399 6,4%
Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum (214) (210) 2,1% (845) (911) -7,3%
Eigin iðgjöld 3.997 3.841 4,0% 15.539 14.488 7,3%
Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri 259 183 41,9% 1.062 777 36,6%
Aðrar tekjur 45 43 4,8% 73 149 -51,2%
Heildartekjur af vátryggingarekstri 4.301 4.067 5,8% 16.674 15.415 8,2%
Tjón tímabilsins (3.177) (3.008) 5,6% (12.160) (11.259) 8,0%
Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins 80 8 857,3% 259 (2)
Eigin tjón (3.096) (2.999) 3,2% (11.901) (11.261) 5,7%
Rekstarkostnaður af vátryggingarekstri (931) (892) 4,3% (3.614) (3.507) 3,0%
Heildargjöld af vátryggingarekstri (4.027) (3.892) 3,5% (15.515) (14.769) 5,1%
Hagnaður/tap af vátryggingarekstri 274 176 56,2% 1.158 646 79,2%
Fjárfestingarstarfsemi
Fjárfestingartekjur af fjárfestingarstarfsemi 390 1.176 -66,9% 1.202 2.657 -54,8%
Rekstarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi (79) (72) 10,6% (275) (239) 15,3%
Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi 310 1.113 927 2.419
Hagnaður fyrir tekjuskatt 584 1.279 2.085 3.065
Tekjuskattur (169) (156) (339) (375)
Heildarhagnaður tímabilsins 416 1.124 1.746 2.690
4F 4F 12M 12M
2017 2016 2017 2016
Tjónahlutfall 75,4% 74,2% 74,2% 73,1%
Endurtryggingahlutfall 2,1% 3,9% 3,1% 5,0%
Tjóna- og endurtryggingahlutfall 77,5% 78,1% 77,3% 78,1%
Kostnaðarhlutfall 22,1% 22,0% 22,1% 22,8%
Samsett hlutfall 99,6% 100,1% 99,4% 100,9%
Ávöxtun eigin fjár 10,9% 26,6% 10,7% 15,9%
Hagnaður á hlut 0,29 0,73 1,19 1,75
Eigið fé 15.206 17.454 15.206 17.454
Gjaldpolshlutfall SII fyrir arð 1,64 1,91 1,64 1,91
Gjaldpolshlutfall SII eftir arð 1,48 1,61

Samstæðureikningur Sjóvár fyrir árið 2017 var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 15. febrúar 2018.

Fjárhæðir eru í milljónum króna