Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Earnings Release 2018

May 14, 2018

2204_rns_2018-05-14_a8ecbbdf-89c9-4096-8766-250325754868.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. mai 2018 – Fréttatilkynning

SJÓVÁ

Sjóvá – Árshlutauppgjör

Hagnaður 749 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins

  • Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 396 m.kr.
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 422 m.kr.
  • Ávöxtun fjárfestingasafns félagsins 2,0%
  • Samsett hlutfall 97,2% samanborið við 103,6% á 1F 2017
  • Horfur fyrir árið 2018 eru að samsett hlutfall verði 96% (2F: 101%, 3F: 93%, 4F: 95%) og að hagnaður fyrir skatta verði um 2.800 m.kr.
  • Tilkynnt verða frávik umfram 5 prósentustig í samsettu hlutfalli innan fjórðunga.

Hermann Björnsson, forstjóri:

„Þegar litið er til samsetts hlutfalls er þetta besti fyrsti ársfjórðungur okkar frá árinu 2014. Sú niðurstaða staðfestir það sem greint hefur verið frá undanfarin uppgjör, að markviss bæting hefur verið í afkomu af vátryggingastarfsemi. Þess er vænst að sú þróun haldi áfram og að eigin iðgjöld vaxi umfram eigin tjón líkt og undanfarin misseri.

Hvað varðar afkomu af fjárfestingarstarfsemi þá var hún einnig góð þó ekki standist hún samanburð við sama fjórðung 2017 þegar ávöxtun var sérstaklega góð.

Undanfarið hafa verið stigin mikilvæg skref í átt að aukinni sjálfvirkni í þjónustu og afgreiðslu í takt við breyttar þarfir viðskiptavina okkar. Þessi vinna hefur verið skilgreind sem eitt af lykilverkefnum innan félagsins og hafa erlendir ráðgjafar verið ráðnir félaginu til aðstoðar með það að markmiði að varða leiðina í átt að enn betri þjónustu við viðskiptavini okkar.

Í byrjun apríl varð stórbruni á atvinnuhúsnæði í Garðabæ. Þó fasteignin hafi ekki verið tryggð hjá Sjóvá varð verulegt tjón á lausafé og var hluti þess tryggt hjá félaginu. Um umtalsvert tjón er að ræða en rúmast engu að síður innan áætlana fyrir árið og mun ekki eitt og sér kalla á að horfum fyrir árið verði breytt.

Kynningarfundur 14. mai kl. 16:15

Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2018, mánudaginn 14. mai kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörð og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar

Fjárhagsdagatal

  1. ársfjórðungur: 23. ágúst 2018
  2. ársfjórðungur: 1. nóvember 2018
    Ársuppgjör 2018: 14. febrúar 2019

The News Announcement and Investors' Presentation in English will be available on the website www.sjova.is

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða fjá[email protected].

Fjárhæðir eru í milljónum króna


SJÖVA

Helstu niðurstöður og lykiltölur

| | 1F
2018 | 1F
2017 | % |
| --- | --- | --- | --- |
| Vátryggingastarfsemi | | | |
| Iðgjöld tímabilsins | 4.251 | 3.849 | 10,4% |
| Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum | (212) | (180) | 18,2% |
| Eigin iðgjöld | 4.039 | 3.669 | 10,1% |
| Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri | 278 | 276 | 0,8% |
| Aðrar tekjur | 8 | 16 | -48,3% |
| Heildartekjur af vátryggingarekstri | 4.325 | 3.961 | 9,2% |
| Tjón tímabilsins | (3.044) | (2.951) | 3,1% |
| Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins | 46 | 50 | -7,0% |
| Eigin tjón | (2.998) | (2.902) | 3,3% |
| Rekstarkostnaður af vátryggingarekstri | (931) | (924) | 0,7% |
| Heildargjöld af vátryggingarekstri | (3.929) | (3.825) | 2,7% |
| Hagnaður/tap af vátryggingarekstri | 396 | 136 | 192,3% |
| Fjárfestingarstarfsemi | | | |
| Fjárfestingartekjur af fjárfestingarstarfsemi | 515 | 1.089 | -52,7% |
| Rekstarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi | (93) | (65) | 44,5% |
| Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi | 422 | 1.024 | -58,8% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 818 | 1.159 | -29,5% |
| Tekjuskattur | (69) | (59) | 16,9% |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 749 | 1.100 | -31,9% |
| | 1F
2018 | 1F
2017 | |
| Tjónahlutfall | 71,6% | 76,7% | |
| Endurtryggingahlutfall | 3,7% | 3,0% | |
| Tjóna- og endurtryggingahlutfall | 75,3% | 79,6% | |
| Kostnaðarhlutfall | 21,9% | 24,0% | |
| Samsett hlutfall | 97,2% | 103,6% | |
| Ávöxtun eigin fjár | 20,2% | 26,7% | |
| Hagnaður á hlut | 0,53 | 0,75 | |
| Eigið fé | 14.459 | 15.472 | |
| Gjaldbolshlutfall | 1,51 | 1,56 | |

Samstæðureikningur Sjóvár fyrir fyrsta ársfjörðung 2018 var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 14. maí 2018. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Fjárhæðir eru í milljónum króna