AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2018
Jun 29, 2018
2204_rns_2018-06-29_eeaa3253-e122-4fbe-8946-0b01b7909ad0.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóvá - Afkomuviðvörun
Sjóvá - Afkomuviðvörun
Í upphafi árs 2018 kynnti Sjóvá horfur um samsett hlutfall eftir ársfjórðungum þar sem fram kom að á öðrum ársfjórðungi væri gert ráð fyrir 97% samsettu hlutfalli og 96% samsettu hlutfalli fyrir árið 2018. Jafnframt kom fram að tilkynnt yrði um frávik frá horfum umfram 5 prósentustig í samsettu hlutfalli innan fjórðunga.
Í kjölfar bruna hjá viðskiptavini Sjóvár í fiskeldisstöð á Núpum í Ölfusi aðfaranótt miðvikudagsins 27. júní sl. er ljóst að samsett hlutfall annars ársfjórðungs verður hærra en ráð var fyrir gert og stefnir í að verði um 106%. Frávikið er ekki aðeins tilkomið vegna þessa eina tjónsatburðar heldur skýrist jafnframt af bruna í Miðhrauni í byrjun apríl sem upplýst var um í fjárfestakynningu þann 14. maí sl. Áhrif þessara tveggja tjóna eru talin um 9 prósentustig til hækkunar á samsettu hlutfalli fjórðungsins.
Í ljósi ofangreinds eru horfur fyrir samsett hlutfall ársins 2018 nú um 98%.
Nú þegar fjórðungurinn er að klárast er ljóst að afkoma af skráðum hlutabréfum verður neikvæð og afkoma af fjárfestingastarfseminni í heild jafnframt neikvæð og því töluvert undir væntingum.
Uppfærðar horfur fyrir samsett hlutfall og afkomu ársins 2018 verða kynntar á afkomukynningu félgasins fyrir annan ársfjórðung þann 23. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða [email protected].