AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2018
Aug 23, 2018
2204_rns_2018-08-23_cfab485f-837c-4907-b586-b01c3643fbc6.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- ágúst 2018 – Fréttatilkynning
SJÓVÁ
Sjóvá – Árshlutauppgjör
Hagnaður 119 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins
Tap 630 m.kr. á öðrum ársfjórðungi
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 47 m.kr.
- Tap af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 680 m.kr.
- Ávöxtun fjárfestingarsafns félagsins -1,3%
- Samsett hlutfall 105,2% samanborið við 100,3% á 2F 2017
- Horfur fyrir árið 2018 eru að samsett hlutfall verði 98% (3F: 94%, 4F: 95%) og að hagnaður fyrir skatta verði um 1.000 m.kr.
- Tilkynnt verða frávik umfram 5 prósentustig í samsettu hlutfalli innan fjórðunga.
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Tveir störbrunar setja mark sitt á afkomu 2. ársfjórðungs og þar með á 6 mánaða árshlutauppgjórið 2018. Samanlagt tjón af völdum þeirra vigtar um 10% í samsettu hlutfalli á fjórðungnum þegar tekið hefur verið tillit til hluta endurtryggjenda. Brunatjón af þessari stærðargráðu henda að jafnaði með nokkurra ára millibili en afar sjaldgæft er að tvö slík komi á einum og sama fjórðungi. Undanfarna fjórðunga hefur vátryggingarekstur þróast með jákvæðum hætti þar sem góður vöxtur er í iðgjöldum, eigin iðgjöld hafa vaxið umfram eigin tjón, að öðrum fjórðungi frátöldum. Sú þróun gerir það að verkum að áhrif þessara bruna á rekstur eru ekki eins mikil og annars hefði orðið.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi jákvæðum iðgjaldavexti á síðari helmingi ársins og að samsett hlutfall í lok árs verði um 98% í stað 96% eins og kynnt var í upphafi árs.
Tap félagsins á fjórðungnum er tilkomið vegna slæmrar afkomu af fjárfestingarstarfsemi og skýrist að langmestu leyti af tapi á hlutabréfasafni. Neikvæð þróun verðbréfamarkaða það sem af er ári veldur því að horfur um afkomu fyrir skatta eru færðar úr 2.800 m.kr. í 1.000 m.kr.
Eins og greint var frá við uppgjör 1. ársfjórðungs fengum við erlenda ráðgjafa til liðs við okkur til að móta stefnu í stafræni þjónustu. Þeir hafa nú lokið störfum og þegar hefur verið hafist handa við að innleiða stefnuna. Fyrsti afrakstur þeirrar vinnu mun líta dagsins ljós á næstu vikum. Í allri nálgun og uppleggi þessarar vinnu eru þarfir viðskiptavina hafðar í forgrunni.“
Kynningarfundur 23. ágúst kl. 16:15
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2018, fimmtudaginn 23. ágúst kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjórið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Fjárhagsdagatal
- ársfjórðungur: 1. nóvember 2018
Ársuppgjör 2018: 14. febrúar 2019
The News Announcement and Investors' Presentation in English will be available on the website www.sjova.is
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða [email protected].
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Helstu niðurstöður og lykiltölur
SJÓVÁ
| 2F 2018 | 2F 2017 | % | 6M 2018 | 6M 2017 | % | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Vátryggingastarfsemi | ||||||
| Iðgjöld tímabilsins | 4.462 | 4.029 | 10,7% | 8.714 | 7.879 | 10,6% |
| Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum | (249) | (214) | 16,4% | -462 | -394 | 17,2% |
| Eigin iðgjöld | 4.213 | 3.815 | 10,4% | 8.252 | 7.484 | 10,3% |
| Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri | 278 | 262 | 6,4% | 556 | 537 | 3,6% |
| Aðrar tekjur | 8 | 4 | 122,7% | 16 | 20 | -19,6% |
| Heildartekjur af vátryggingarekstri | 4.499 | 4.080 | 10,3% | 8.824 | 8.041 | 9,7% |
| Tjón tímabilsins | (3.879) | (3.004) | 29,1% | -6.923 | -5.956 | 16,2% |
| Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins | 395 | 114 | 245,9% | 441 | 164 | 168,9% |
| Eigin tjón | (3.484) | (2.890) | 20,6% | -6.482 | -5.792 | 11,9% |
| Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri | (968) | (941) | 2,9% | -1.899 | -1.864 | 1,9% |
| Heildargjöld af vátryggingarekstri | (4.452) | (3.831) | 16,2% | -8.381 | -7.656 | 9,5% |
| Hagnaður/tap af vátryggingarekstri | 47 | 250 | -81,2% | 443 | 385 | 15,1% |
| Fjárfestingarstarfsemi | ||||||
| Fjárfestingartekjur af fjárfestingarstarfsemi | (583) | 609 | -% | -68 | 1.697 | -% |
| Rekstrarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi | (97) | (69) | 39,8% | -190 | -134 | 42,0% |
| Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi | (680) | 539 | -% | -259 | 1.563 | -% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | (633) | 789 | -% | 185 | 1.949 | -90,5% |
| Tekjuskattur | 3 | (87) | -% | -66 | -146 | -55,0% |
| Heildarhagnaður tímabilsins | (630) | 702 | -% | 119 | 1.803 | -93,4% |
| 2F | 2F | 6M | 6M | |||
| 2018 | 2017 | 2018 | 2017 | |||
| Tjónahlutfall | 86,9% | 74,6% | 79,5% | 75,6% | ||
| Endurtryggingahlutfall | -3,4% | 2,4% | 0,1% | 2,7% | ||
| Tjóna- og endurtryggingahlutfall | 83,5% | 77,0% | 79,5% | 78,3% | ||
| Kostnaðarhlutfall | 21,7% | 23,3% | 21,8% | 23,7% | ||
| Samsett hlutfall | 105,2% | 100,3% | 101,3% | 101,9% | ||
| Ávöxtun eigin fjár | -17,4% | 16,9% | 1,6% | 21,7% | ||
| Hagnaður á hlut | -0,44 | 0,49 | 0,08 | 1,26 | ||
| Eigið fé | 13.695 | 15.832 | 13.695 | 15.832 | ||
| Gjaldbolshlutfall | 1,45 | 1,58 | 1,45 | 1,58 |
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir annan ársfjörðung 2018 var sampykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 23. ágúst 2018. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
Fjárhæðir eru í milljónum króna