AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2016
Jan 19, 2017
2204_rns_2017-01-19_275a8fdf-33af-4a2b-b6fb-9c458e2a21bd.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Afkomuviðvörun
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Afkomuviðvörun
Í upphafi árs 2016 kynnti Sjóvá horfur fyrir árið um afkomu á bilinu 2,0-2,5
ma.kr. og samsett hlutfall á bilinu 98-100%.
Í drögum að uppgjöri fyrir árið 2016 er afkoma félagsins fyrir skatta um 3,0
ma.kr. og samsett hlutfall um 101%. Á fjórða ársfjórðungi er afkoman um 1,2
ma.kr. og samsett hlutfall um 100%. Bætt afkoma fjórðungsins helgast af betri
fjárfestingatekjum en ráð var fyrir gert, m.a. vegna endurmats á óskráðum
eignum um 300 m.kr.
Félagið mun birta ársuppgjör fyrir árið 2016 eftir lokun markaða 16. febrúar
nk. og býður félagið markaðsaðilum til kynningarfundar kl. 16.15 þann sama dag
í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, s:844-2136,
netfang:[email protected]