Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Earnings Release 2016

Feb 16, 2017

2204_rns_2017-02-16_5c8833d6-22ca-497a-bd17-42cb09dbc494.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Ársuppgjör 2016

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Ársuppgjör 2016

Afkoma af fjárfestingastarfsemi umfram væntingar
Vátryggingarekstur á réttri leið

Hagnaður ársins 2.690 m.kr.

-- Samsett hlutfall 100,9%
-- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 646 m.kr.
-- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 2.459 m.kr.
-- Afkoma fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna lækkar úr 3.935 m.kr.
árið 2015 í 3.105 m.kr. árið 2016
-- Heildarhagnaður ársins 2.690 m.kr. eða 1,75 kr. á hlut
-- Ávöxtun verðbréfasafns 10,1% á árinu
-- 15,9% arðsemi eigin fjár
-- Horfur fyrir árið 2017 gera ráð fyrir að samsett hlutfall verði á bilinu
97-99% og að hagnaður fyrir skatta verði meiri en 2.500 m.kr.
-- Stjórn leggur til arðgreiðslu sem nemur 1,75 kr. á hlut eða um 2.600 m.kr.

Hagnaður 1.124 m.kr. á fjórða ársfjórðungi

-- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 176 m.kr.
-- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 1.113 m.kr.
-- Ávöxtun verðbréfasafns 3,8%
-- Ávöxtun af verðbréfasafni var umfram væntingar m.a. vegna endurmats á
óskráðum eignum

Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár fyrir árið 2016 var óvenju góð sem helgast fyrst og fremst af
ávöxtun fjárfestingareigna sem var umfram væntingar. Afkoman af
vátryggingastarfsemi fyrir árið var ekki langt frá birtum horfum í upphafi
síðasta árs. Aðgerðir á liðnu ári til lækkunar á samsettu hlutfalli báru
árangur og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram á þessu ári.
Tjónshlutfallið er hærra en við teljum ásættanlegt en þar hafa aukin umsvif í
þjóðfélaginu áhrif. Fjölgun erlendra ferðamanna hefur þar líka sitt að segja.
Aukningin á milli ára í umferð um hringveginn í fyrra var sú mesta frá upphafi
mælinga og vísbendingar eru um að sú þróun muni halda áfram.

Innviðirnir verða að fylgja þessari stórauknu umferð því með henni aukast líkur
á alvarlegu slysi en slys á erlendum ferðamönnum eiga sér flest stað í
dreifbýli. Alvarlegum umferðarslysum sem ferðamenn lenda í hefur fjölgað meira
en sem nemur fjölgun ferðamanna undanfarin tvö ár og það er þróun sem við eigum
ekki að sætta okkur við. Það er forgangsmál að tryggja öryggi allra sem ferðast
um landið með forvörnum og frekari fjárfestingum í vegakerfinu og öðrum
innviðum,“ segir Hermann.

Helstu niðurstöður og lykiltölur

                                  4F      4F     %     2016     2015       %
                                2016    2015

Iðgjöld tímabilsins 4.051 3.490 16% 15.399 14.076 9,4%
Eigin iðgjöld 3.841 3.263 18% 14.488 13.317 8,8%
Fjárfestingartekjur 1.359 1.208 13% 3.434 4.623 -25,7%
Þar af fjárfestingartekjur af 183 46 298% 777 751 3,5%
vátryggingaskuld
Heildartekjur 5.243 4.477 17% 18.072 17.992 0,4%
Tjón tímabilsins -3.008 -3.382 -11% -11.259 -11.239 0,2%
Eigin tjón -2.999 -2.898 4% -11.261 -10.596 6,3%
Rekstrarkostnaður -954 -836 14% -3.706 -3.462 7,1%
Afskrift óefnislegra eigna -10 -3.519 -39 -3.830
Heildargjöld -3.964 -7.254 -15.007 -17.888
Afkoma fyrir skatta 1.279 -2.776 3.065 105
Afkoma eftir skatta 1.124 -2.016 2.690 657

Tjónahlutfall 74,2% 96,9% 73,1% 79,8%
Endurtryggingahlutfall 3,9% -7,6% 5,0% 0,4%
Kostnaðarhlutfall 22,0% 25,8% 22,8% 23,6%
Samsett hlutfall 100,1% 115,2% 100,9% 103,9%
Ávöxtun eigin fjár 26,6% -23,2% 15,9% 3,9%
Hagnaður á hlut 0,73 -1,28 1,75 0,42

                                                       2016     2015

Verðbréf 36.204 33.785
Viðskiptakröfur 4.339 4.078
Handbært fé 1.063 1.385
Heildareignir 43.303 41.435
Eigið fé 17.454 16.291
Eiginfjárhlutfall 40,3% 39,3%
Gjaldþolshlutfall SII 1,91 1,86
Gjaldþolshlutfall SII eftir arðgreiðslu 1,61 1,79

                                             Fjárhæðir eru í milljónum króna

Kynningarfundur 16. febrúar kl. 16:15
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi
á árinu 2016, fimmtudaginn 16. febrúar kl. 16:15 í fundarsal félagsins í
Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara
spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á
vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar

Aðalfundur 17. mars kl. 15:00
Aðalfundur Sjóvár verður haldinn föstudaginn 17. mars kl. 15:00 í fundarsal
félagsins, Kringlunni 5, 6. hæð.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 440-2000 eða
[email protected].


Samstæðureikningur Sjóvár fyrir árið 2016 var samþykktur af stjórn og forstjóra
á stjórnarfundi þann 16. febrúar 2017.

Viðhengi: