AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2017
Aug 24, 2017
2204_rns_2017-08-24_1235861a-db7d-4816-ae9c-6b20abd224c3.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- ágúst 2017 – Fréttatilkynning
SJÓVÁ
Sjóvá – Árshlutauppgjör
Hagnaður 1.803 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins
Hagnaður 702 m.kr. á öðrum ársfjórðungi
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 250 m.kr.
- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 539 m.kr.
- Ávöxtun eignasafns félagsins 2,5%
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár á öðrum ársfjórðungi er í takt við það sem búast mátti við og það sama má segja um afkomuna fyrstu sex mánuði ársins. Eins og oft áður er það fjárfestingarstarfsemin sem myndar stærsta hluta heildarafkomunnar. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að bæta afkomu vátryggingastarfseminnar. Þess sjást merki í afkomu annars ársfjórðungs sem var mun betri en fyrir ári þrátt fyrir einstök stærri stór tjón það sem af er árinu. Fyrir fyrstu sex mánuði ársins hefur vöxtur eigin iðgjalda verið meiri en vöxtur eigin tjóna.
Við teljum afar brýnt að ná betri tökum á þeirri tjónaþróun sem verið hefur í umferðinni þar sem hvert tjón getur valdið óbætanlegum skaða og kostnaður numið tugum milljóna. Sjóvá er þátttakandi í verkefninu Höldum fókus sem snýst um að vekja athygli á mikilli og almennri símnotkun við akstur og afleiðingum hennar með það að markmiði að draga úr slysum. Það er til mikils að vinna fyrir okkur sem samfélag að breyta þeirri hegðun til hins betra.“ segir Hermann.
Helstu niðurstöður og lykiltölur
| 2F | 2F | 6M | 6M | |||
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2017 | 2016 | % | 2017 | 2016 | % | |
| Vátryggingastarfsemi | ||||||
| Iðgjöld tímabilsins | 4.029 | 3.691 | 9,2% | 7.879 | 7.275 | 8,3% |
| Hluti endurtryggjenda í iðgjaldatekjum | -214 | -208 | 2,9% | -394 | -389 | 1,2% |
| Eigin iðgjöld | 3.815 | 3.482 | 9,6% | 7.484 | 6.885 | 8,7% |
| Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri | 262 | 204 | 28,4% | 537 | 401 | 33,8% |
| Aðrar tekjur | 4 | 4 | 0,0% | 20 | 15 | 32,3% |
| Heildartekjur af vátryggingarekstri | 4.080 | 3.690 | 10,6% | 8.041 | 7.302 | 10,1% |
| Tjón tímabilsins | -3.004 | -2.723 | 10,3% | -5.956 | -5.415 | 10,0% |
| Hluti endurtryggjenda í tjónum tímabilsins | 114 | 40 | 185,0% | 164 | -4 | |
| Eigin tjón | -2.890 | -2.684 | 7,7% | -5.792 | -5.419 | 6,9% |
| Rekstrarkostnaður af vátryggingarekstri | -941 | -879 | 7,1% | -1.864 | -1.807 | 3,2% |
| Heildargjöld af vátryggingarekstri | -3.831 | -3.562 | 7,6% | -7.656 | -7.226 | 5,9% |
| Hagnaður/tap af vátryggingarekstri | 250 | 128 | 95,3% | 385 | 75 | 410,5% |
| Fjárfestingarstarfsemi | ||||||
| Fjárfestingartekjur af fjárfestingarstarfsemi | 609 | 374 | 62,8% | 1.697 | 885 | 91,7% |
| Rekstrarkostnaður af fjárfestingarstarfsemi | -69 | -43 | 60,5% | -134 | -107 | 25,6% |
| Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi | 539 | 331 | 62,8% | 1.563 | 779 | 100,8% |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 789 | 458 | 72,3% | 1.949 | 854 | 128,1% |
| Tekjuskattur | -87 | -173 | -49,7% | -146 | -145 | 0,3% |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 702 | 286 | 145,5% | 1.803 | 709 | 154,4% |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
SJÓVÁ
| 2F | 2F | 6M | 6M | |
|---|---|---|---|---|
| 2017 | 2016 | 2017 | 2016 | |
| Tjónahlutfall | 74,6% | 73,8% | 75,6% | 74,4% |
| Endurtryggingahlutfall | 2,4% | 4,5% | 2,7% | 5,2% |
| Kostnaðarhlutfall | 23,3% | 23,9% | 23,7% | 24,8% |
| Samsett hlutfall | 100,3% | 102,2% | 101,9% | 104,5% |
| Ávöxtun eigin fjár | 16,9% | 7,0% | 21,7% | 8,8% |
| Hagnaður á hlut | 0,49 | 0,18 | 1,26 | 0,46 |
| Eigið fé | 15.832 | 16.197 | 15.832 | 16.197 |
| Gjaldpolshlutfall SII | 1,58 | 1,93 | 1,58 | 1,93 |
Kynningarfundur 24. ágúst kl. 16:15
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á öðrum ársfjörðungi 2017, fimmtudaginn 24. ágúst kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjórið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 440-2000 eða [email protected].
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir annan ársfjörðung var sambykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 24. ágúst 2017. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
Fjárhæðir eru í milljónum króna