AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2016
Oct 27, 2016
2204_rns_2016-10-27_a1e71c00-3d91-423f-907a-35bd6e8e845a.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- október 2016 – Fréttatilkynning
SJÓVÁ
Sjóvá – Árshlutauppgjör
Hagnaður 1.567 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins
Hagnaður 858 m.kr. á þriðja ársfjórðungi
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 396 m.kr.
- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 536 m.kr.
- Ávöxtun eignasafns félagsins 2,2%
- Verðbréfamarkaðir voru líflegir á þriðja ársfjórðungi og ávöxtun af eignasafninu umfram væntingar
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma þriðja ársfjórðungs er góð, sem helgast fyrst og fremst af ágætum fjárfestingartekjum. Vátryggingarekstur hefur styrkst frá sama tíma í fyrra og frá liðnum fjórðungum og hefur samsett hlutfall ekki verið lægra síðan á fjórða fjórðungi 2014. Sögulega séð hefur þriðji ársfjórðungur komið best út, þar sem kostnaður er lægri og tjón alla jafna minni en í öðrum fjórðungum. Sé litið til afkomu fyrir fyrstu 9 mánuði ársins verður hún í heildina að teljast góð þar sem tjónahlutfall fer lækkandi. Væntingar eru um að aðgerðir sem gripið hefur verið til færi afkomu ársins nær þeim horfum sem birtar voru í upphafi árs, þ.e. að samsett hlutfall verði á bilinu 98-100% og að afkoma fyrir skatta verði 2 til 2,5 milljarðar“, segir Hermann.
Helstu niðurstöður og lykiltölur
| 3F 2016 | 3F 2015 | % | 9M 2016 | 9M 2015 | % | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Iðgjöld tímabilsins | 4.073 | 3.627 | 12% | 11.348 | 10.586 | 7% |
| Eigin iðgjöld | 3.761 | 3.450 | 9% | 10.647 | 10.054 | 6% |
| Fjárfestingartekjur | 789 | 1.413 | -44% | 2.076 | 3.416 | -39% |
| Þar af fjárfestingartekjur af vátryggingaskuld | 193 | 257 | -25% | 595 | 705 | -16% |
| Heildartekjur | 4.642 | 4.901 | -5% | 12.829 | 13.515 | -5% |
| Tjón tímabilsins | -2.836 | -2.713 | 5% | -8.252 | -7.857 | 5% |
| Eigin tjón | -2.843 | -2.563 | 11% | -8.262 | -7.698 | 7% |
| Rekstrarkostnaður | -867 | -832 | 4% | -2.781 | -2.625 | 6% |
| Afskrift óefnislegra eigna | 0 | -104 | 0 | -311 | ||
| Heildargjöld | -3.710 | -3.499 | 6% | -11.043 | -10.634 | 4% |
| Afkoma fyrir skatta | 932 | 1.403 | -34% | 1.786 | 2.881 | -38% |
| Afkoma eftir skatta | 858 | 1.293 | -34% | 1.567 | 2.673 | -41% |
| Tjónahlutfall | 69,6% | 74,8% | 72,7% | 74,2% | ||
| Endurtryggingahlutfall | 5,6% | -0,3% | 5,3% | 3,1% | ||
| Kostnaðarhlutfall | 19,8% | 21,4% | 23,0% | 22,9% | ||
| Samsett hlutfall | 95,0% | 95,9% | 101,1% | 100,3% | ||
| Ávöxtun eigin fjár | 20,7% | 45,0%* | 12,6% | 29,0%* | ||
| Hagnaður á hlut | 0,56 | 0,82 | 0,46 | 0,87 |
*leiðrétt um áhrif óefnislegra eigna
SJÓVÁ
| 9M 2016 | 2015 | |
|---|---|---|
| Verðbréf | 34.649 | 33.785 |
| Viðskiptakröfur | 5.585 | 4.078 |
| Handbært fé | 1.882 | 1.385 |
| Heildareignir | 43.956 | 41.435 |
| Eigið fé | 16.900 | 16.291 |
| Eiginfjárhlutfall | 38,4% | 39,3% |
| Gjaldpolshlutfall SII | 1,95 | 1,86 |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Kynningarfundur 28. október kl. 8:30
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi 2016, föstudaginn 28. október kl. 8:30 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða [email protected].
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir þriðja ársfjórðung var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 27. október 2016. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
*leiðrétt um áhrif óefnislegra eigna