AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2015
Nov 6, 2015
2204_rns_2015-11-06_2e2e5744-a171-425d-8a9f-7b2c6393555c.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
SJÓVÁ
- november 2015
Fréttatilkynning vegna 9 mánaða uppgjørs Sjóvár
Sjóvá hagnaðist um 2.673 m.kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins
- Afkoma af vátryggingastarfsemi nam 677 m.kr. fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna
- Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 2.515 m.kr. fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár á þriðja ársfjörðungi var afar góð og ræður þar mestu góð afkoma af fjárfestingarstarfsemi en hún var mun betri en að jafnaði má vænta. Afkoma af einstökum vátryggingagreinum er mjög mismunandi. Sumar greinar hafa komið fremur illa út vegna óveðurstjóna liðinn vetur og bifreiðatryggingar halda áfram að skila neikvæðri afkomu, en þegar hefur verið gripið til ráðstafana til að bæta afkomu þeirra.“
Þriðji ársfjörðungur:
Afkoma
- Hagnaður af rekstri Sjóvár á þriðja ársfjörðungi nam 1.293 m.kr. (0,82 kr. á hlut)
- Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 1.506 m.kr.
- Afkoma af vátryggingastarfsemi nam 406 m.kr.
- Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 1.100 m.kr.
- Samsett hlutfall samstæðunnar var 95,9%
Efnahagur
- Eigið fé nam 16.287 m.kr.
- Fjárfestingareignir án söfnunarliftrygginga námu 30.402 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 36,6%
- Arðsemi eigir fjár á ársgrundvelli var 32,8%
- Gjaldðolshlutfall móðurfélagsins var 5,51
Fjárfestingar
Á fjörðungnum jók félagið mest við eign sína í skráðum hlutabréfum og óverðtryggðum ríkisskuldabréfum. Ávöxtun eignasafnsins var 4,9% á fjörðungnum og vó þar þyngst að ávöxtun skráðra hlutabréfa var 13,9%.
Horfur
Í upphafi árs kynnti Sjóvá horfur í rekstri ársins 2015. Félagið hefur þegar greint frá því að horfur um samsett hlutfall muni ekki nást vegna fleiri tjóna á fyrri hluta árs en ráð var fyrir gert. Líkur eru á að samsett hlutfall verði undir 100%. Fjárfestingartekjur fyrstu 9 mánuði ársins voru vel umfram það sem vænta mátti og allar líkur eru á að hagnaður verði umfram fyrrgreindar horfur.
SJÖVA
Væntanleg breyting á reikningsskilum
Í árslok 2015 hyggst samstæðan breyta um reikningsskilaðferð við mat á tjónaskuld í tengslum við innleiðingu á löggjöf um vátryggingastarfsemi, Solvency II, sem taka mun gildi í ársbyrjun 2016. Reiknað álag vegna óvissu er lægra samkvæmt nýjum reglum og jafnframt breytist með hvaða hætti áhætta er mæld í starfsemi vátryggingafélaga. Pessi breyting mun hafa áhrif á stöðu eigin fjár, tjónaskuldar og tekjuskatts og verða rekstrar- og efnahagsreikningar áranna 2014 og 2015 lagaðir að breytingunni.
Breyting á skipan framkvæmdastjórnar
Ákveðið hefur verið að breyta skipan framkvæmdastjórnar með þeim hætti að framvegis mun hún eingöngu skipuð framkvæmdastjórum félagsins auk forstjóra. Undanfarin ár hafa auk framangreindra átt sæti í framkvæmdastjórn tveir forstöðumenn, annars vegar forstöðumaður fjárfestinga og hins vegar forstöðumaður trygginga- og tölfræðigreiningar. Þeir munu eftir sem áður heyra beint undir forstjóra.
Lykiltölur
| 3F 2015 | 3F 2014 | Breyting | 9M 2015 | 9M 2014 | Breyting | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Iðgjöld tímabilsins | 3.627 | 3.470 | 4,5% | 10.586 | 10.141 | 4,4% |
| Eigin iðgjöld | 3.450 | 3.311 | 4,2% | 10.054 | 9.564 | 5,1% |
| Fjárfestingartekjur | 1.413 | 473 | 3.416 | 731 | ||
| Heildartekjur | 4.901 | 3.790 | 29,3% | 13.515 | 10.319 | 31,0% |
| Tjón tímabilsins | -2.713 | -2.858 | -5,1% | -7.857 | -7.118 | 10,4% |
| Eigin tjón | -2.563 | -2.582 | -0,7% | -7.698 | -6.744 | 14,2% |
| Rekstrarkostnaður | -935 | -951 | -1,6% | -2.936 | -3.066 | -4,2% |
| Þar af afskriftir óefnislegra eigna | -104 | -104 | -311 | -311 | ||
| Heildargjöld | -3.499 | -3.533 | -1,0% | -10.634 | -9.809 | 8,4% |
| Afkoma fyrir skatta | 1.403 | 258 | 2.881 | 510 | ||
| Afkoma eftir skatta | 1.293 | 210 | 2.673 | 415 | ||
| Tjónahlutfall | 74,8% | 82,4% | 74,2% | 70,2% | ||
| Endurtryggingahlutfall | -0,3% | -3,6% | 3,1% | 1,8% | ||
| Kostnaðarhlutfall | 21,4% | 22,5% | 22,9% | 24,5% | ||
| Samsett hlutfall | 95,9% | 101,3% | 100,3% | 96,5% | ||
| Ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli | 32,8% | 1,6% | 20,9% | 3,3% | ||
| Leiðrétt ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli | 45,0% | 8,9% | 29,0% | 6,8% | ||
| Gjaldþólslutfall móðurfélags | 5,51 | 5,78 | 5,51 | 5,78 |
SJÓVÁ
Kynningarfundur
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi 2015
föstudaginn 6. nóvember kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann
Björnsson forstjóri mun kynna uppgjórið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með
beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða [email protected].
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir þriðja ársfjórðung var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi
þann 6. nóvember 2015. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af
endurskoðendum félagsins.