AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2014
Nov 18, 2014
2204_rns_2014-11-18_6318c69f-b2ab-4aea-8a4c-8ec0995587ad.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Árshlutauppgjör
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Árshlutauppgjör
Afkoma Sjóvár á þriðja ársfjórðungi 2014
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir þriðja ársfjórðung var samþykktur af stjórn og
forstjóra á stjórnarfundi þann 18. nóvember 2014. Árshlutareikningurinn hefur
hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
Afkoma fyrstu níu mánuði 2014
Afkoma
-- Hagnaður af rekstri Sjóvár á fyrstu níu mánuðum ársins 2014 var 415 m.kr
(0,26 kr. á hlut) samanborið við 1.693 m.kr. hagnað á sama tíma árið áður
(1,06 kr. á hlut)
-- Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 862 m.kr. (2.463
m.kr. 9M 2013)
-- Hagnaður af vátryggingastarfsemi nam 962 m.kr. (1.540 m.kr. 9M 2013)
-- Tap af fjárfestingarstarfsemi nam 452 m.kr. (583 m.kr. hagnaður 9 M 2013)
Hlutföll
-- Samsett hlutfall samstæðunnar var 96,5% (92,6% 9M 2013)
-- Tjónahlutfall var 70,2% (64,6% 9M 2013)
-- Kostnaðarhlutfall var 24,5% (23,3% 9M 2013)
-- Endurtryggingahlutfall var 1,8% (4,6% 9M 2013)
Efnahagur
-- Eigið fé nam 17.196 m.kr. samanborið við 16.781 m.kr. um áramót
-- Fjárfestingareignir námu 31.199 m.kr. samanborið við 30.010 m.kr. um áramót
-- Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 39,0% en var 39,3% í upphafi árs
-- Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 3,3%
-- Gjaldþolshlutfall móðurfélagsins var 5,78 í lok fjórðungsins
Afkoma Sjóvár á þriðja ársfjórðungi 2014
Afkoma
-- Hagnaður af rekstri Sjóvár á þriðja ársfjórðungi 2014 var 210 m.kr. (0,13
kr. á hlut) samanborið við 851 m.kr. hagnað á sama tíma árið áður (0,53 kr.
á hlut)
-- Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 376 m.kr. en (1.204
m.kr. 3F 2013)
-- Hagnaður af vátryggingastarfsemi nam 171 m.kr. (449 m.kr. 3F 2013)
-- Hagnaður af fjárfestingastarfsemi nam 87 m.kr. (640 m.kr.hagnaður á 3F
2013)
Hlutföll
-- Samsett hlutfall samstæðunnar var 101,3% (93,2% 3F 2013)
-- Tjónahlutfall var 82,4% (64,9% 3F 2013)
-- Kostnaðarhlutfall var 22,5% (20,9% 3F 2013)
-- Endurtryggingahlutfall var -3,6% (7,4% 3F 2013)
Hermann Björnsson, forstjóri
„Vátryggingarekstur gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins. Í skráningarlýsingu
frá í vor voru settar fram horfur um afkomu ársins 2014. Þar var gert ráð fyrir
að raunvöxtur yrði í iðgjöldum, að samsett hlutfall yrði á bilinu 94-96% og að
hagnaður fyrir skatta og afskriftir óefnislegra eigna yrði á bilinu 2,7 til 3,3
milljarðar króna. Útlit er fyrir að horfurnar um samsett hlutfall og raunvöxt
iðgjalda standist en afkoma fjárfestinga veldur því að hagnaður sá sem reiknað
var með í lýsingu mun ekki nást.
Á þriðja ársfjórðungi hækka einstök stærri tjón tjónahlutfallið en slík einstök
tjón eru innan eðlilegra sveiflna á vátryggingamarkaði. Enn sem komið er
merkjum við ekki aukna tjónatíðni almennt, þó reikna megi með slíkri þróun á
næstu misserum. Rekstrarkostnaður hækkaði á árinu vegna skráningarkostnaðar,
aukinna sölulauna og markaðskostnaðar en 3,1% raunvöxtur eigin iðgjalda ásamt
hagræðingaraðgerðum hefur leitt af sér lækkun kostnaðarhlutfalls milli
fjórðunga eins og gert var ráð fyrir“ segir Hermann.
Kynningarfundur
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi
þann 19. nóvember kl. 8:30. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sjóvár í
Kringlunni 5 en þar mun Hermann Björnsson forstjóri kynna uppgjörið og svara
spurningum.
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða
[email protected].
Viðhengi: