Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Board/Management Information 2017

May 3, 2017

2204_rns_2017-05-03_2480475d-f313-4ae0-80d2-d2e57f1245f1.html

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sjóvá: Breytingar á framkvæmdastjórn

Sjóvá: Breytingar á framkvæmdastjórn

Það hefur orðið að samkomulagi að Sæmundur Sæmundsson láti af störfum sem
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Sjóvá. Sæmundur hefur starfað sem
framkvæmdastjóri sviðsins í rúm 5 ár og hefur á þeim tíma unnið afar gott starf
þar sem sviðið hefur m.a. farið í gegnum tvær vottanir, jafnlaunavottun og
ISO-27001 upplýsingaöryggisvottun. Sæmundur hefur einnig leitt
upplýsingatæknideild Sjóvár í gegnum mikla umbreytingu sem falið hefur í sér
einfaldari og betri grunnstoðir og agaðra verklag. Um er að ræða fækkun í
framkvæmdastjórn félagsins sem mun í framhaldinu skipa 4 framkvæmdastjóra, tvær
konur og tvo karla ásamt forstjóra. Í kjölfar þessara breytinga verður
skipuriti félagsins breytt og verður það kynnt á næstu dögum.

Ég vil fyrir hönd Sjóvár þakka Sæmundi afar gott og farsælt samstarf með óskum
um velfarnað á nýjum vettvangi.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf.

Hermann Björnsson, forstjóri