Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar AGM Information 2021

Feb 18, 2021

2204_rns_2021-02-18_451b008a-9e91-4a47-98e0-a5edd61929c7.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sjóvá

440 2000

Aðalfundur

Sjóvá-Almennra trygginga hf.
12. mars 2021

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður í fundar-sölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 12. mars 2021 kl. 15:00. Jafnframt verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.

Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til sambykktar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári.
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
  5. Tillaga um lækku hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum.
  6. Tillögur um breytingar á sambykktum félagsins.
  7. Formaður tilnefningarnefndar gerir grein fyrir störfum nefndarinnar.
  8. Kosning stjórnar félagsins.
  9. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
  10. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og tilnefningarnefndar.
  11. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
  12. Önnur mál löglega upp borin.

Stjórn Sjóvár hefur ákveðið að aðalfundurinn verði einnig rafrænn, þ.e. hluthafar geti tekið þátt í fundinum með rafrænum hætti í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða fylgjast með fundinum í vefstreymi, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu www.smartagm.com. Hluthafar eru beðnir um að skrá sig tímanlega á fundinn og helst eigi síðar en kl. 17:00 þann 11. mars, eða degi fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma.

Þeir sem skrá sig til fundar með rafrænum hætti fá aðgang að streymi af fundinum, geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun eingöngu fara fram í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins á fundarstað eða taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður småforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM á tölvu eða spjaldtölvu. Nánari upplýsingar um skráningu á fundinn og framkvæmd kosninga verðar birtar á vefsvæði félagsins, www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/.

Hluthafar getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hónd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboðum skal skila við skráningu á fundinn á slöðinni www.smartagm.com.

Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 2. mars 2021. Hafni hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur, ályktanir eða spurningar fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum.

Tillögur stjórnar um breytingar á sambykktum lúta í stuttu mál að lækku hlutafjár, orðalagsbreytingu um starfstíma endurskoðanda, heimild til að halda hluthafafund eingöngu rafrænt og heimild til rafrænna skjalasamskipta við hluthafa.

Tilnefningarnefndar er að störfum í samræmi við sambykktir félagsins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu nefndarinnar til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt þess kost að koma áhuga sínum, og eftir atvikum framboði, á framfæri við nefndina. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu tilnefningarnefndar gerir hún tillögu um að þau Björgólfur Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Hildur Árnadóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro verði kjörin til setu sem aðalmenn í stjórn og þau Erna Gísladóttir og Garðar Gíslason verði kjörin sem varamenn.

Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólar-hringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. sunnudaginn 7. mars 2021 kl. 15:00, en vegna eðlis og umfangs starfa tilnefningarnefndar er ekki tryggt að nefndin geti lagt mat á framboð sem berast eftir að tvær vikur eru til fundarins, þ.e. eftir kl. 15:00 föstudaginn 26. febrnar 2021. Framboð skulu berast á netfangið [email protected]. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Breytist tillaga nefndarinnar frá því er fram kemur í fundarboði þessu verður endurskoðuð tillaga birt eigi síðar en 10. mars 2021. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á vefsvæðinu www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/, að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund.

Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund, auk annarra upplýsinga og eyðublaða í tengslum við aðalfundinn, verða birt á vefsvæði félagsins, www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/.

Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega er til hans boðað. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku.

Reykjavík 18. febrnar 2021.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.

sjova.is

SJÓVÁ