AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — AGM Information 2021
Mar 9, 2021
2204_rns_2021-03-09_7243ce67-dee0-4360-9114-ec60d85d7217.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur Sjóvá 12. mars 2021 - Framboð til stjórnar
Aðalfundur Sjóvá 12. mars 2021 - Framboð til stjórnar
Framboðsfrestur til stjórnar Sjóvá-Almennra trygginga hf. rann út þann 7. mars 2021. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður föstudaginn 12. mars kl. 15:00 í fundarsölum H og I á Hilton Reykjavík, Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, auk þess sem gefinn verður kostur á rafrænni þátttöku á fundinum:
Í framboði til stjórnar:
- Björgólfur Jóhannsson
- Guðmundur Örn Gunnarsson
- Hildur Árnadóttir
- Ingi Jóhann Guðmundsson
- Ingunn Agnes Kro
- Már Wolfgang Mixa
Í framboði sem varamenn í stjórn:
- Erna Gísladóttir
- Garðar Gíslason
Mat stjórnar er að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Með því að fleiri framboð bárust ekki til varamennsku í stjórn eru frambjóðendur sem varamenn í stjórn sjálfkjörnir.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar er að finna í viðhengjum, auk skýrslu tilnefningarnefndar. Önnur fundargögn tengd aðalfundinum má nálgast á vefsvæði félagsins https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/
Viðhengi: