AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — AGM Information 2016
Mar 10, 2016
2204_rns_2016-03-10_f468eb00-d2bf-450f-9d81-b7deafa6b46e.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
SJÓVÁ
Breytingartillaga stjórnar vegna aðalfundar 11. mars 2016
Dagskrárliður 3. – Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu reikningsári
Breytingartillaga: Í samræmi við ákvörðun stjórnarfundar 10.03.2016, leggur stjórn félagsins til að greiddur verði arður sem nemur 657 m.kr. fyrir árið 2015.
Greinargerð stjórnar: Í ljósi viðbragða við fyrirliggjandi tillögu stjórnar um arðgreiðslu og yfirstandandi orðsporsáhættu hefur stjórnin ákveðið að endurskoða þá tillögu sína.
Fyrri tillaga stjórnar var byggð á yfirlýstri arðgreiðslustefnu félagsins og í samræmi við fjárhagslegan styrk þess. Miðaðist hún við að fjárhagsstaðan yrði áfram jafn sterk eftir greiðslu arðs og hún var í ársbyrjun 2015.
Forsenda fyrri tillögu um arðgreiðslu byggir á rekstrarniðurstöðu síðasta árs en ekki á breyttum reikningsskilum eða breytingu á tjónaskuld eins og misskilningur hefur verið um í umræðinni.
Rangfærslur um áhrif arðgreiðslu á fjárhagslegan styrk ógna orðspori Sjóvár. Það er skylda stjórnar að gæta að orðspori félagsins og í því ljósi er þessi tillaga sett fram.
Stjórn Sjóvár harmar þá tortryggni sem beinst hefur að félaginu undanfarna daga. Með þessari breytingartillögu vill stjórn bregðast við henni og mun samhliða beita sér fyrir bættri upplýsingagjóf í því skyni að stuðla að aukinni sátt.