Earnings Release • Apr 29, 2025
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer
Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2025
1 12M EBITDA inniheldur 12M pro forma EBITDA Noona.
María Björk Einarsdóttir, forstjóri:
"Fjórðungurinn einkenndist af traustum grunnrekstri, talsverðum tekjuauka af auglýsingamiðlun og áframhaldandi uppbyggingu fjártæknirekstrar þar sem viðskiptavinum fjölgar hratt, ekki síst á fyrirtækjamarkaði. Þá sótti Sjónvarp Símans Premium áfram í sig veðrið og eru áskrifendur nú 10% fleiri en í lok fyrsta ársfjórðungs 2024, eða um 50 þúsund talsins. Framleiðsla vandaðs innlends sjónvarpsefnis fyrir viðskiptavini Símans hefur aldrei verið metnaðarfyllri en um þessar mundir.
Óvænt niðurstaða Hæstaréttar litar þó myndina, þar sem dómum Héraðsdóms og Landsréttar í "enska bolta málinu" svokallaða var snúið við af klofnum Hæstarétti, og Síminn dæmdur til greiðslu 400 m.kr. sektar. Niðurstöður þriggja lagadeilna til viðbótar kölluðu á gjaldfærslu upp á um 60 m.kr. Þessu til viðbótar voru um 35 m.kr. gjaldfærðar í dráttarvexti af greiðslum vegna dómsmála undir fjármagnsgjöldum. Lagaleg óvissa hefur minnkað til muna með lokum þessara mála.
Auglýsingamiðlun er orðin traust tekjustoð í rekstri Símans. Auglýsingaskilti eru nú 41 talsins og strætóskýli í rekstri félagsins hafa 620 skjái og fer fjölgandi. Sterkir umhverfis- og sjónvarpsmiðlar Símans skapa einstakt virði fyrir viðskiptavini með miklum sýnileika, auk þess sem umhverfismiðlarnir skila samfélagslegum ávinningi til samstarfsaðila í íþrótta- og sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Við höldum áfram að þróa og byggja upp fjártæknilausnir í fremstu röð, en 118 rekstraraðilar nota nú fyrirtækjakort Símans Pay sem kynnt var til sögunnar í fyrra, þar af mörg stærstu fyrirtækja landsins. Tæplega 150 þúsund skráðir notendur eru á Noona-appinu, sem varð hluti af samstæðu Símans í fyrra, og bóka þeir yfir 200 þúsund tíma í fjölbreytta þjónustu á mánuði. Tugmilljarða velta fer í gegnum kerfi Noona Iceland á ári.
Tólf nýjar leiknar íslenskar þáttaraðir eru nú búnar í tökum eða á leið í tökur fyrir Sjónvarp Símans Premium. Yfir 52.000 einstaklingar horfðu á fyrsta þátt Reykjavík 112, sem frumsýndur var um páskana, fyrstu vikuna í sýningu. Framleiðsla á íslensku barnaefni heldur áfram af krafti með áherslu á að efla íslenska tungu. Stórir samningar við HBO, Paramount, ShowTime, MGM og ITV tryggja viðskiptavinum Símans sjónvarpsefni í fremstu röð allt árið um kring, sem endurspeglast í sívaxandi vinsældum veitunnar.
Innleiðing nýrrar stefnu hefur verið ríkjandi áhersla í rekstrinum síðustu mánuði. Þrátt fyrir að við séum á fyrstu metrunum í því verkefni er árangurinn strax byrjaður að sýna sig og markverð fylgni er milli sívaxandi starfsánægju og vaxandi ánægju viðskiptavina, en báðir mælikvarðar eru mældir með formföstum og reglubundnum hætti innan Símans. Ég vil nota tækifærið og þakka samstarfsfólki mínu hjá Símanum fyrir þann metnað sem lagður hefur verið í stefnuvinnuna af öllum einingum fyrirtækisins. Það er ekki sjálfsagt að finna svona mikinn meðbyr í slíkri vegferð, á sama tíma og starfsfólk sinnir daglegum rekstri af elju og ávallt með hagsmuni viðskiptavina í fyrirrúmi."
Heildartekjur á 1F 2025 námu 7.173 m.kr. samanborið við 6.575 m.kr. á sama tímabili 2024, sem er 9,1% vöxtur milli ára. Sé horft til farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu er tekjuvöxtur 2,3%.
Tekjur af farsíma námu 1.685 m.kr. og hækkuðu um 57 m.kr. eða 3,5% á milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.067 m.kr. og hækkuðu um 3 m.kr. eða 0,1% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsþjónustu án auglýsingatekna námu 1.901 m.kr. og hækkuðu um 65 m.kr. eða 3,5% á milli ára. Tekjur af nýjum starfsþætti, auglýsingamiðlun2 , námu 563 m.kr. og hækkuðu um 390 m.kr. á milli ára. Munar þar mestu um tekjur Billboard sem námu
| Rekstrarreikningur | 1F | |||
|---|---|---|---|---|
| 2025 | 2024 Breyting | % | ||
| Sala | 7.003 | 6.417 | 586 | 9,1% |
| Kostnaðarverð sölu | ( 4.526) | ( 4.180) | ( 346) | 8,3% |
| Framlegð | 2.477 | 2.237 | 240 | 10,7% |
| Aðrar rekstrartekjur | 170 | 158 | 12 | 7,6% |
| Rekstrarkostnaður | ( 1.997) | ( 1.964) | ( 33) | 1,7% |
| Stjórnvaldssekt og skaðabætur | ( 461) | 0 | ( 461) | |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 189 | 431 | ( 242) | -56,1% |
| Fjármunatekjur | 192 | 183 | 9 | 4,9% |
| Fjármagnsgjöld | ( 513) | ( 378) | ( 135) | 35,7% |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 321) | ( 195) | ( 126) | 64,6% |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | ( 132) | 236 | ( 368) -155,9% | |
| Tekjuskattur | ( 56) | ( 65) | 9 | -13,8% |
| (Tap) hagnaður | ( 188) | 171 | ( 359) -209,9% | |
| EBITDA | 1.272 | 1.435 | ( 163) | -11,4% |
| (Tap ) hagnaður á hlut | (0,08) | 0,07 | (0,15) -214,3% |
370 m.kr., en félagið varð hluti af samstæðu í byrjun 2F 2024. Tekjur af vörusölu námu 415 m.kr. og drógust saman um 9 m.kr. eða 2,1% á milli ára. Tekjur af öðrum rekstri námu 542 m.kr. og hækkuðu um 92 m.kr. á milli ára.
Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 4.526 m.kr. og hækkaði um 346 m.kr. eða 8,3% frá sama tímabili 2024, einkum vegna nýrra dótturfélaga sem komu inn í samstæðuna á 2F 2024. Rekstrarkostnaður nam 2.458 m.kr. og hækkaði um 494 m.kr. eða 25,2% frá sama tímabili 2024 en 400 m.kr. af aukningunni má rekja til áðurnefnds Hæstaréttardóms, og rúmlega 60 m.kr. rekstrarkostnaðar í tengslum við þrjár aðrar lagadeilur sem lauk á fjórðungnum.
Afskriftir félagsins námu 1.083 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.004 m.kr. á sama tímabili árið 2024 og hækka um 79 m.kr. á milli tímabila.
2 Inniheldur auglýsingatekjur í sjónvarpi sem áður tilheyrði Sjónvarpsþjónustu og auglýsingasölu Billboard sem áður tilheyrði öðrum tekjum.
Rekstrarhreyfingar námu samtals 1.283 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.456 m.kr. á 1F 2024. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 1F 2025 námu 122 m.kr. til lækkunar.
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 1.161 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.279 m.kr. á 1F 2024. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 872 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.121 m.kr. á 1F 2024.
Sé leiðrétt fyrir gjaldfærslu vegna dómsmála var handbært fé án vaxta og skatta 1.621 m.kr., en 1.367 m.kr. eftir vexti og skatta.
| Sjóðstreymi | 1F 2025 | 1F 2024 |
|---|---|---|
| Rekstrarhagnaður | 189 | 431 |
| Afskriftir | 1.083 | 1.004 |
| Liðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi | 11 | 21 |
| Samtals rekstrarhreyfingar | 1.283 | 1.456 |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | ( 122) | ( 177) |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 1.161 | 1.279 |
| Innborgaðir vextir | 184 | 175 |
| Greiddir vextir | ( 420) | ( 243) |
| Greiddir skattar | ( 53) | ( 90) |
| Handbært fé frá rekstri | 872 | 1.121 |
| Fjárfestingarhreyfingar | ( 1.993) | ( 5.143) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 683 | 4.240 |
| Breytingar á handbæru fé | ( 438) | 218 |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | ( 4) | ( 2) |
| Handbært fé í byrjun tímabilsins | 835 | 1.810 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 393 | 2.026 |
Á 1F 2024 keypti Síminn Billboard sem hefur áhrif á fjárfestinga- og fjármögnunarhreyfingar á því tímabili. Á 1F 2025 keypti Síminn lánasafn sem hefur áhrif á sömu liði.
Heildareignir félagsins námu 42.135 m.kr. í lok 1F 2025 en voru 41.182 m.kr. í lok árs 2024.
Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 18.884 m.kr. í lok 1F 2025 samanborið við 17.168 m.kr. í lok árs 2024. Handbært fé í lok 1F 2025 nam 393 m.kr. samanborið við 835 m.kr. í lok árs 2024. Hreinar vaxtaberandi skuldir að teknu tilliti til útlána Símans Pay voru 13.763 m.kr. í lok 1F 2025 samanborið við 13.021 m.kr. í árslok 2024.
Eigið fé félagsins nam 16.916 m.kr. í lok 1F 2025 og eiginfjárhlutfall félagsins var 40,1%.
| Efnahagsreikningur | 31.03.2025 | 31.12.2024 | Breyting | % |
|---|---|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 3.638 | 3.543 | 95 | 3% |
| Leigueignir | 1.750 | 1.844 | ( 94) | -5% |
| Óefnislegar eignir | 25.713 | 26.243 | ( 530) | -2% |
| Aðrar eignir | 980 | 638 | 342 | 54% |
| Fastafjármunir | 32.081 | 32.268 | ( 187) | -1% |
| Birgðir | 1.329 | 1.339 | ( 10) | -1% |
| Viðskiptakröfur | 2.403 | 2.503 | ( 100) | -4% |
| Útlán | 4.278 | 3.204 | 1.074 | 34% |
| Aðrar skammtímakröfur | 1.651 | 1.033 | 618 | 60% |
| Handbært fé | 393 | 835 | ( 442) | -53% |
| Veltufjármunir | 10.054 | 8.914 | 1.140 | 13% |
| Eignir samtals | 42.135 | 41.182 | 953 | 2% |
| Eigið fé | 16.916 | 18.116 | ( 1.200) | -7% |
| Eigið fé | 16.916 | 18.116 | ( 1.200) | -7% |
| Vaxtaberandi skuldir | 14.129 | 12.733 | 1.396 | 11% |
| Leiguskuldbindingar | 1.484 | 1.571 | ( 87) | -6% |
| Tekjuskattsskuldbinding | 578 | 686 | ( 108) | -16% |
| Langtímaskuldir | 16.191 | 14.990 | 1.201 | 8% |
| Vaxtaberandi skuldir | 2.484 | 2.084 | 400 | 19% |
| Viðskiptaskuldir | 3.787 | 3.760 | 27 | 1% |
| Næsta árs afborganir | 787 | 780 | 7 | 1% |
| Aðrar skammtímaskuldir | 1.970 | 1.452 | 518 | 36% |
| Skammtímaskuldir | 9.028 | 8.076 | 952 | 12% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 42.135 | 41.182 | 953 | 2% |
Afkomuspá fyrir samstæðuna var uppfærð þann 26. febrúar 2025 með tilliti til niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli milli Símans og Samkeppniseftirlitsins sem féll sama dag. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem og dómi Landsréttar um að ákvörðunin skyldi felld úr gildi og sektaði Símann um 400 milljónir króna.
Spá fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir eftirtöldu:
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2025 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning.
Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.
| Uppgjör 2F 2025 | 19. ágúst 2025 |
|---|---|
| Uppgjör 3F 2025 | 22. október 2025 |
| Ársuppgjör 2025 | 17. febrúar 2026 |
| Aðalfundur 2026 | 12. mars 2026 |
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans ([email protected]) Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])
3 Án áhrifa afskrifta á óefnislegum eignum vegna kaupa á félögum.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.