Board/Management Information • Apr 15, 2023
Board/Management Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Á dagskrá aðalfundarins í Síldarvinnslunni hf. 18. apríl 2023 er kosning stjórnar í félaginu. Samkvæmt samþykktum félagsins er stjórnin skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara.
Frestur til að bjóða sig fram til stjórnar er nú runninn út og hafa eftirtalin boðið sig fram:
Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri, kt. 130367-3729 Ásgerður Halldórsdóttir, fyrrv. bæjarstjóri, kt. 060656-5929 Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri, kt. 060376-3449 Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri, 080980-5159 Guðmundur R. Gíslason, framkvæmdastjóri, kt. 190270-2979 Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri, kt. 071052-4359
Arna Bryndís Baldvins McClure, lögfræðingur, kt. 020785-2689 Ingi Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri, kt. 120169-5729
Anna er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem fjármálastjóri Gjögurs hf., áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts ohf. frá 1998-2008. Anna er jafnframt framkvæmdastjóri Þingstaða ehf. Anna var fyrst kjörin í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2013.
Anna situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Gjögurs hf., Kallnesings ehf., Kjálkaness ehf., Loftleiða Cabo Verde ehf., Lögmannsstofu Jörundar Gaukssonar ehf. og StorMar ehf.
Anna er hluthafi í Kjálkanes ehf. sem á 16,06 % hlut í Síldarvinnslunni hf. Anna á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf. Hún á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Anna er óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háð stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Ásgerður er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hún starfaði sem bæjarstjóri Seltjarnarness á árunum 2009-2022. Frá 2005 til 2009 var hún forstöðumaður reikningshalds hjá Glitni banka og síðar Íslandsbanka en fyrir það var Ásgerður forstöðumaður reikningshalds og innra eftirlits hjá Tryggingamiðstöðinni til ársins 2005.
Ásgerður situr ekki í stjórnum annarra félaga.
Ásgerður á 17.241 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Ásgerður telst óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Baldur er með Cand.sci. próf í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands (2000), lauk AMP stjórnunarnámi frá IMD háskólanum í Sviss (2022) og er með löggilt próf í verðbréfaviðskiptum. Hann starfar sem framkvæmdastjóri verslunar, þjónustu- og viðskiptaþróunar hjá Reginn hf. Hann var framkvæmdastjóri Eyju fjárfestingarfélags (2017-2019). Fjárfestinga- og sjóðsstjóri hjá Auði Capital (2009-2016). Fjárfestinga- og lánastjóri hjá Íslandsbanka, m.a. í Bandaríkjunum og Danmörku (2000-2009). Hefur setið í stjórnum hjá Skeljungi, Sýn, Securitas, Já, Íslenska Gámafélaginu og Domino's Íslandi og Noregi. Situr ekki í stjórnum annarra félaga í dag. Baldur var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2021.
Baldur á 17.241 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Baldur telst óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Erla Ósk er með B.A. próf í hagfræði og tölvunarfræði frá Macalester College í Bandaríkjunum og klárar MBA nám við Háskólanum í Reykjavík vorið 2023. Hún starfar í dag sem framkvæmdastjóri Marine Collagen ehf. Áður var hún meðal annars mannauðstjóri hjá Vísi hf. um fjögurra ára skeið. Erla hefur ekki setið áður í stjórn Síldarvinnslunnar hf.
Erla Ósk situr jafnframt í stjórnum Fisktækniskólans, Codland, Fiskifélagsins og Útvegsmannafélags Suðurnesja.
Erla Ósk á 2.145.923 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Erla telst óháð stórum hluthöfum félagsins en telst háð félaginu og daglegum stjórnendum samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Guðmundur er með B.ed. gráðu í kennsluvísindum. Hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað, auk þess að vera framkvæmdastjóri Byggingarfélagsins Ness ehf. og Múlans samvinnuhúss ehf. Hann var áður framkvæmdastjóri Egilsbúðar í Neskaupstað, mannauðsstjóri ESS á Íslandi og framkvæmdastjóri Sjónaráss ehf. Sveitarstjórnarmaður í Neskaupstað og Fjarðabyggð 1990 – 2010 og forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar frá 2006-2010. Var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2016.
Guðmundur situr jafnframt í stjórnum eftirtalinna félaga: B.G Bros ehf., Múlinn samvinnuhús ehf., Ís-Travel Austurland ehf., Hrólfskers ehf. og S2002 ehf.
Guðmundur er, eins og áður hefur komið fram, framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað sem eiga samtals um 11,81% hlut í Síldarvinnslunni. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Guðmundur telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Þorsteinn er með skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og skipaverkfræðingur frá Norges Tekniske Högskole. Þorsteinn er stofnandi og forstjóri Samherja hf. og hefur gegnt því starfi frá árinu 1983. Hann er jafnframt framkvæmdastjóri Hann er jafnframt framkvæmdastjóri Samherja Ísland ehf., Samherja Holding ehf., Útgerðarfélags Akureyringa ehf., Seleyjar ehf., Sæbóls fjárfestingarfélags ehf., Oddeyrartanga ehf., Látrafjalla ehf. og Fjárfestingarfélagsins Fjarðar ehf. Var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2003.
Þorsteinn situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Samherji Fiskeldi ehf., 600 Eignarhaldsfélag ehf., Barðstún ehf., Eignarhaldsfélagið Steinn ehf., Ice-Tech ehf., Kaldbakur ehf., Kattarnef ehf., Krossanes ehf., Oddeyri ehf., Rif ehf., Samherjasjóðurinn ehf., Sigurafl ehf., Snæfell ehf. Þorsteinn er auk þess með prókúruumboð fyrir Ice-Fresh Seafood ehf.
Þorsteinn er forstjóri Samherja hf. sem á 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Þorsteinn á 0,87% eignarhlut í Samherja hf í gegnum Eignarhaldsfélagið Stein ehf.
Hann á 1.000.000 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Þorsteinn telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Arna er með ML-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og stundar Executive MBA nám við IESE háskólann í Barcelona með námslok vorið 2023. Hún starfaði hjá LEX lögmannsstofu frá 2010- 2013 og hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samherja hf. frá 2013 til 2022. Var fyrst kjörinn í varastjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2013 og endurskoðunarnefnd árið 2021.
Arna situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Emerald Invest ehf.
Arna á 32.100 hluti í Síldarvinnslunni hf.
Arna telst óháð félaginu, stórum hluthöfum og daglegum stjórnendum samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Ingi er Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf., Kjálkaness ehf. og Gjögurtáar ehf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða ehf. frá 1995-2000. Var fyrst kjörinn í stjórn Síldarvinnslunnar hf. árið 2001.
Ingi situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: K.R.- sport hf., Loftleiðir Cabo Verde ehf., Hrólfssker ehf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Jarðböðin ehf., Norðurböðin ehf., Pharmarctica ehf. og StorMar ehf.
Ingi er hluthafi í Kjálkanesi ehf. sem á 16,06 % hlut í Síldarvinnslunni hf. Ingi á 22 % eignarhlut í Kjálkanesi ehf. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. Ingi er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.