AI assistant
Ísfélag hf. — AGM Information 2024
Apr 15, 2024
8639_rns_2024-04-15_bfb1b37a-0121-4857-b6e5-64d88c05b915.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
ÍSFÉLAG
ADALFUNDUR ÍSFÉLAGS HF. - 17. APRÍL 2024
TILLÓGUR STJÖRNAR
ISFÉLAG
DAGSKRÁ FUNDARINS
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. starfsár.
- Staðfesting ársreiknings félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
- Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
- Kosning stjórnar
- Kosning endurskoðanda
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna og nefndarmanna í endurskoðunarnefnd
- Tilnefning tveggja utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd
- Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum
- Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp hafa verið borin löglega

ÍSFÉLAG
TILLAGA UM GREIÐSLU ARÐS
Aðalfundur Ísfélags hf. haldinn í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 17. apríl 2024 samþykkir að greiddar verði ISK 2.100.000.000 í arð vegna ársins 2023, en vísar að öðru leyti til ársreiknings um meðferð hagnaðar. Arðgreiðslan sem hlutfall af hagnaði ársins 2023 er 39,4% og jafngildir ISK 2,57 á hvern hlut. Tillagan er í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins sem kveður á um að greiða að lágmarki 30% af hagnaði næstliðins árs í arð til hluthafa.
Samþykki aðalfundur tillöguna skulu arðsréttindi miða við hluthafaskrá félagsins í lok dags 19. apríl 2024, þ.e. viðskipti sem gerð eru í síðasta lagi 17. apríl 2024. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna rekstrarársins 2023 verður því 18. apríl 2024, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðs verður 30. apríl 2024.

ISFÉLAG
TILLAGA UM STARFSKJARASTEFNA
Stjórn Ísfélags hf. leggur til við aðalfund félagsins að
starfskjarastefna verði samþykkt í óbreyttri mynd.
ISFELAG
KOSNING STJÓRNAR
Í framboði til stjórnar félagsins eru eftirfarandi:
- Guðbjörg Matthíasdóttir
- Einar Sigurðsson
- Gunnar Sigvaldason
- Steinunn H. Marteinsdóttir
- Sigríður Vala Halldórsdóttir
ISFÉLAG
KOSNING ENDURSKOĐENDA FÉLAGSINS
Stjórn Ísfélags hf. að fenginni tillögu endurskoðunarnefndar félagsins, leggur til við aðalfund félagsins að KPMG ehf. verði áfram endurskoðendur félagsins. KPMG ehf. fól Matthiási Þ. Óskarssyni ábyrgð á endurskoðun og áritun ársreiknings 2023.
ÍSFÉLAG
ÁKVÖRDUN UM PÓKNUN STJÓRNARMANNA OG NEFNDARMANNA Í ENDURSKOÐUNARNEFND
Stjórn leggur til við aðalfund félagsins að stjórnarlaun vegna ársins 2024 verði sem hér segir:
- Stjórnarformaður fái í stjórnarlaun ISK 500.000 á mánuði og aðrir stjórnarmenn ISK 250.000 á mánuði.
Stjórn leggur til við aðalfund félagsins að þóknanir vegna endurskoðunarnefndar vegna ársins 2024 verði sem hér segir:
- Formaður endurskoðunarnefndar fái í þóknun ISK 260.000 á mánuði og aðrir nefndarmenn ISK 130.000 á mánuði.
ÍSFÉLAG
TILNEFNING TVEGGJA UTANAÐKOMANDI AÐILA Í ENDURSKOÐUNARNEFND
Stjórn tilnefnir í endurskoðunarnefnd félagsins sem hér segir:
- Stjórn tilnefnir Lárus Finnbogason sem formann nefndarinnar og Gunnar Svavarsson, sem báðir eru óháðir félaginu. Einnig er Einar Sigurðsson, varaformaður stjórnar, tilnefndur í endurskoðunarnefnd.
ÍSFÉLAG
TILLAGA UM HEIMILD STJÓRNAR TIL KAUPA Á EIGIN BRÉFUM
Aðalfundur Ísfélags hf. haldinn í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 17. apríl 2024 samþykkir að veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.
