Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Ísfélag hf. AGM Information 2024

Apr 15, 2024

8639_rns_2024-04-15_7830283c-f693-44c8-aa4c-bd70fcd5edaf.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Aðalfundur Ísfélags hf. 2024 - Frambjóðendur til stjórnar, dagskrá og endanlegar tillögur.

Aðalfundur Ísfélags hf. 2024 - Frambjóðendur til stjórnar, dagskrá og endanlegar tillögur.

Fundurinn er haldinn rafrænt og á Tangagötu 1 Vestmannaeyjum þann 17.  apríl 2024 kl. 16:00.

Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem eru í kjöri á aðalfundinum 17. apríl 2024. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur allt að sjö menn í stjórn. Fimm einstaklingar eru í kjöri til aðalstjórnar og er því sjálfkjörið í stjórn.

Í kjöri til stjórnar eru:

  • Einar Sigurðsson
  • Guðbjörg Matthíasdóttir
  • Gunnar Sigvaldason
  • Steinunn H. Marteinsdóttir
  • Sigríður Vala Halldórsdóttir

Engar breytingar eru á fyrirliggjandi tillögum fyrir fundinn eða áður birtri dagskrá. Tillögur eru meðfylgjandi.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á

https://www.lumiconnect.com/meeting/isfelagagm2024

eigi síðar en kl. 16:00 þann 16. apríl 2024, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Mikilvægt er að skrá sig á fundinn þó mætt sé á fundinn á Tangagötu 1, þar sem atkvæðagreiðsla fundarins verður í kerfinu.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://isfelag.is/fjarfestar/

Attachments: