AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Ísfélag hf.

AGM Information Apr 17, 2024

8639_rns_2024-04-17_e3e4e7d5-7ba5-409d-a4d1-d42f3a3ddb64.html

AGM Information

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Ísfélag hf. - Niðurstöður aðalfundar 17. apríl 2024

Ísfélag hf. - Niðurstöður aðalfundar 17. apríl 2024

Aðalfundur Ísfélags hf. var haldinn í að Tangagötu 1 í Vestmannaeyjum og rafrænt þann 17. apríl 2024. Mætt var fyrir 82,7 % atkvæða.

Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fundarins:

Ársreikningur

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.

Tillaga um greiðslu arðs

Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2024 vegna rekstrarársins 2023 verði 2,57 kr. á hlut eða 2.100.000 milljónir kr. Arðurinn verður greiddur 30. apríl 2024. Réttur hluthafa til arðgreiðslu miðast við hlutaskrá 19. apríl 2024.

Tillaga um starfskjarastefnu

Tillaga að starfskjarastefnu var lögð fram óbreytt og var hún samþykkt.

Kosning stjórnar félagsins

Í stjórn félagsins voru kjörin: Guðbjörg Matthíasdóttir, Einar Sigurðsson, Gunnar Sigvaldason, Steinunn H. Marteinsdóttir og Sigríður Vala Halldórsdóttir. Samsetning stjórnar uppfyllir ákvæði laga og samþykkta félagsins um kynjahlutfall.

Ákvörðun um þóknun til stjórnar félagsins

Samþykkt var að stjórnarlaun vegna ársins 2024 verði sem hér segir: Formaður verði með kr. 500.000 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með 250.000.

Ákvörðun um þóknun til endurskoðunarnefndar

Samþykkt var að þóknanir vegna ársins 2024 verði sem hér segir: Formaður verði með kr. 260.000 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með 130.000.

Kosning endurskoðenda

Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir næsta ár verði KPMG (Matthías Þ. Óskarsson).

Tillaga um endurskoðunarnefnd

Samþykkt var tillaga stjórnar um tilnefningu nefndarmanna í endurskoðunarnefnd. Tilnefnir voru Lárus Finnbogason sem formann nefndarinnar og Gunnar Svavarsson, sem báðir eru óháðir félaginu. Einnig var tilnefndur Einar Sigurðsson, varaformaður stjórnar, í endurskoðunarnefnd.​

Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur samþykkti að framlengja heimild stjórn félagsins til að kaupa eigin hluti í félaginu til næstu átján mánaða.

Stjórn félagsins kom saman í kjölfar aðalfundar og hefur skipt með sér verkum. Var ákveðið að Einar Sigurðsson yrði stjórnarformaður og Steinunn H. Marteinsdóttir varaformaður stjórnar.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.