AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Jun 16, 2025

2202_rns_2025-06-16_6fe136e7-857b-4097-b23c-642d82a2a08e.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 24

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 24

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.  

Í 24. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 720.000 eigin hluti að kaupverði 83.070.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
10/6/25 09:50 920 117,00 107.640 1.988.916
10/6/25 14:51 9.173 117,00 1.073.241 1.998.089
10/6/25 14:51 39.907 117,00 4.669.119 2.037.996
11/6/25 13:37 100.000 117,00 11.700.000 2.137.996
12/6/25 13:38 200.000 116,00 23.200.000 2.337.996
12/6/25 14:07 7.874 116,00 913.384 2.345.870
12/6/25 14:45 62.126 116,00 7.206.616 2.407.996
13/6/25 11:08 100.000 114,50 11.450.000 2.507.996
13/6/25 13:31 100.000 114,00 11.400.000 2.607.996
13/6/25 14:28 100.000 113,50 11.350.000 2.707.996
Samtals 720.000 83.070.000 2.707.996

Reitir hafa nú keypt samtals 2.707.996 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 64,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 312.545.532 kr. sem samsvarar 62,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.200.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Frá birtingu uppgjörs fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 2.707.996 eigin hluti fyrir 312.545.532 kr.

Reitir eiga nú samtals 2.707.996 eigin hluti, eða um 0,39% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 694.292.004.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.