AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Feb 17, 2025

2202_rns_2025-02-17_27ab7d80-d428-47c4-8615-80d9e711743f.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 455008

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 28. janúar 2025.

Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 7 viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 714.958 eigin hluti að kaupverði 84.557.565 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
10/2/25 13:42 100.000 118,00 11.800.000 12.935.042
11/2/25 11:10 100.000 118,00 11.800.000 13.035.042
12/2/25 13:52 100.000 117,50 11.750.000 13.135.042
13/2/25 11:13 114.958 117,50 13.507.565 13.250.000
13/2/25 15:16 100.000 120,00 12.000.000 13.350.000
14/2/25 10:14 100.000 119,00 11.900.000 13.450.000
14/2/25 14:33 100.000 118,00 11.800.000 13.550.000
Samtals 714.958 84.557.565 13.550.000

Reitir hafa nú keypt samtals 3.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 75% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 344.673.611 kr. sem samsvarar 77% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 450 milljónir króna.

Frá birtingu stjórnendauppgjörs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 3.000.000 eigin hluti fyrir 344.673.611 kr.

Reitir eiga nú samtals 13.550.000 eigin hluti, eða um 2,0% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 698.000.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á netfangið [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.