AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Feb 10, 2025

2202_rns_2025-02-10_52a9b672-8439-4974-b26f-847e3edc310d.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 454608

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 28. janúar 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 6. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 735.042 eigin hluti að kaupverði 84.643.546 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
3/2/25 13:41 1.442 113,00 162.946 12.101.442
3/2/25 15:19 100.000 113,25 11.325.000 12.201.442
4/2/25 13:17 100.000 114,50 11.450.000 12.301.442
5/2/25 10:04 100.000 116,00 11.600.000 12.401.442
5/2/25 14:19 100.000 115,00 11.500.000 12.501.442
6/2/25 13:14 100.000 114,50 11.450.000 12.601.442
6/2/25 13:59 100.000 115,00 11.500.000 12.701.442
7/2/25 10:07 25.600 116,00 2.969.600 12.727.042
7/2/25 14:22 8.000 117,00 936.000 12.735.042
7/2/25 14:45 100.000 117,50 11.750.000 12.835.042
Samtals 735.042 84.643.546 12.835.042
Reitir hafa nú keypt samtals 2.285.042 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 57,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 260.116.046 kr. sem samsvarar 57,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 450 milljónir króna.
Frá birtingu stjórnendauppgjörs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 2.285.042 eigin hluti fyrir 260.116.046 kr.
Reitir eiga nú samtals 12.835.042 eigin hluti, eða um 1,80% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 698.714.958.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.