AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Apr 1, 2024

2202_dirs_2024-04-01_254e226b-cc96-41fb-bb5f-5143fdd03129.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 444689

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 13

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 13. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 700.000 eigin hluti að kaupverði 55.450.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
25/3/24 14:16 200.000 79,50 15.900.000 1.100.000
26/3/24 11:20 100.000 79,00 7.900.000 1.200.000
26/3/24 14:00 100.000 79,00 7.900.000 1.300.000
26/3/24 14:42 100.000 78,50 7.850.000 1.400.000
27/3/24 11:01 100.000 78,50 7.850.000 1.500.000
27/3/24 14:29 100.000 80,50 8.050.000 1.600.000
Samtals 700.000 55.450.000 1.600.000

Reitir hafa nú keypt samtals 1.600.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 28,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 126.600.000 kr. sem samsvarar 25,3% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.550.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 12.050.000 eigin hluti fyrir 983.500.000 kr.

Reitir eiga nú samtals 1.600.000 eigin hluti, eða um 0,22% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 709.950.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.