AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Apr 15, 2024

2202_dirs_2024-04-15_2d55f3d6-a40b-4dd2-a39c-da30e6bd2310.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 445232

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 15

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 15. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 800.000 eigin hluti að kaupverði 63.125.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
8/4/24 11:40 100.000 79,75 7.975.000 2.700.000
8/4/24 12:53 100.000 79,75 7.975.000 2.800.000
8/4/24 14:21 100.000 79,75 7.975.000 2.900.000
9/4/24 10:17 100.000 79,50 7.950.000 3.000.000
11/4/24 12:50 100.000 79,00 7.900.000 3.100.000
11/4/24 13:27 100.000 78,50 7.850.000 3.200.000
11/4/24 13:57 100.000 78,00 7.800.000 3.300.000
12/4/24 10:26 100.000 77,00 7.700.000 3.400.000
Samtals 800.000 63.125.000 3.400.000

Reitir hafa nú keypt samtals 3.400.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 61,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 269.500.000 kr. sem samsvarar 53,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.550.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 13.850.000 eigin hluti fyrir 1.126.400.000 kr.

Reitir eiga nú samtals 3.400.000 eigin hluti, eða um 0,48% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 708.150.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.