AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares May 13, 2024

2202_dirs_2024-05-13_9e16d648-0368-43e2-b0fc-48634903b200.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 446782

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 19

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. maí 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. maí 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 19. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 500.000 eigin hluti að kaupverði 36.750.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
6/5/24 10:21 100.000 73,50 7.350.000 6.176.354
6/5/24 14:08 100.000 73,50 7.350.000 6.276.354
6/5/24 15:20 1.100 73,00 80.300 6.277.454
6/5/24 15:21 98.900 73,00 7.219.700 6.376.354
7/5/24 10:07 100.000 72,50 7.250.000 6.476.354
8/5/24 10:38 815 75,00 61.125 6.477.169
8/5/24 11:25 850 75,00 63.750 6.478.019
8/5/24 13:49 1.275 75,00 95.625 6.479.294
8/5/24 13:49 97.060 75,00 7.279.500 6.576.354
Samtals 500.000 36.750.000 6.576.354

Reitir hafa nú keypt samtals 1.026.354 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 18,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 75.963.373 kr. sem samsvarar 15,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 425 milljónir króna.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 17.026.354 eigin hluti fyrir 1.367.437.546 kr.

Reitir eiga nú samtals 6.576.354 eigin hluti, eða um 0,92% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 704.973.646.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.