AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Mar 25, 2024

2202_rns_2024-03-25_0fddca09-824d-4a24-9354-8e122951ce1f.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár, heildarfjöldi hluta og atkvæða

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár, heildarfjöldi hluta og atkvæða

Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 6. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 34.088.233 kr. að nafnvirði. Lækkunin tók til eigin hluta félagsins sem það eignaðist með kaupum í samræmi við endurkaupaáætlanir stjórnar sem aðalfundir félagsins 2022 og 2023 veittu heimildir fyrir, og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 711.550.000 kr. en var fyrir lækkunina 745.638.233 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Heildarfjöldi hluta og heildarfjöldi atkvæða er þar af leiðandi 711.550.000 kr. að nafnverði.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: [email protected], sími: 669 4416.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.