AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Feb 27, 2023

2202_dirs_2023-02-27_9bebd1cf-9941-492d-817a-a5436a65d5a2.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 428925

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupa í viku 8

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 8. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 85.825.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
20/2/23 10:33 150.000 86,00 12.900.000 19.340.000
20/2/23 10:43 150.000 86,00 12.900.000 19.490.000
21/2/23 10:34 100.000 87,75 8.775.000 19.590.000
21/2/23 14:06 100.000 86,50 8.650.000 19.690.000
21/2/23 15:03 100.000 86,00 8.600.000 19.790.000
22/2/23 09:46 100.000 85,00 8.500.000 19.890.000
23/2/23 14:05 150.000 84,50 12.675.000 20.040.000
24/2/23 13:43 150.000 85,50 12.825.000 20.190.000
Samtals 1.000.000 85.825.000 20.190.000

Reitir hafa nú keypt samtals 2.690.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 45% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun.

Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 231.785.000 kr. sem samsvarar 42% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 20.190.000 eigin hluti, eða um 2,65% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.