AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Apr 3, 2023

2202_dirs_2023-04-03_6e36942d-5ce4-4722-9242-97e0eca0e404.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 431079

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 13

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 13. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 500.000 eigin hluti að kaupverði 41.375.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
28/3/23 13:51 200.000 82,75 16.550.000 22.102.695
30/3/23 13:35 300.000 82,75 24.825.000 22.402.695
Samtals 500.000 41.375.000 22.402.695

Reitir hafa nú keypt samtals 4.902.695 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 81,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 411.244.643 kr. sem samsvarar 74,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 22.402.695 eigin hluti, eða um 2,94% af heildarhlutafé félagsins. Af þeirri fjárhæð voru 17.500.000 hlutir keyptir undir endurkaupaáætlunum síðasta árs en þeim lauk þann 19. desember sl. Aðalfundur félagsins þann 8. mars sl. samþykkti að lækka útgefið hlutafé félagsins um þá fjárhæð og er skráning hennar nú í lögformlegu ferli. Að teknu tilliti til lækkunarinnar væru hlutir í eigu Reita nú 4.902.695 hlutir eða 0,66% af hlutafé félagsins eins og það verður skráð eftir lækkunina.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.