Transaction in Own Shares • May 2, 2023
Transaction in Own Shares
Open in ViewerOpens in native device viewer
Disclosure 432312
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 17. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 350.000 eigin hluti að kaupverði 29.450.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 28/4/23 | 09:49 | 150.000 | 84,00 | 12.600.000 | 6.150.000 |
| 28/4/23 | 16:14 | 200.000 | 84,25 | 16.850.000 | 6.350.000 |
| Samtals | 350.000 | 29.450.000 | 6.350.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 350.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 5,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 29.450.000 kr. sem samsvarar 5,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Reitir eiga nú samtals 6.350.000 eigin hluti, eða um 0,85% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.