AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Jun 5, 2023

2202_dirs_2023-06-05_c710b2f0-1bef-45bd-b59a-4e6f8f985801.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 434000

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 22

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 22. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 650.000 eigin hluti að kaupverði 50.700.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
30/5/23 10:20 100.000 78,50 7.850.000 9.842.496
31/5/23 10:08 100.000 78,00 7.800.000 9.942.496
31/5/23 10:26 100.000 78,00 7.800.000 10.042.496
31/5/23 14:27 150.000 78,00 11.700.000 10.192.496
2/6/23 15:23 200.000 77,75 15.550.000 10.392.496
Samtals 650.000 50.700.000 10.392.496

Reitir hafa nú keypt samtals 4.392.496 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 72,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 356.407.796 kr. sem samsvarar 64,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 10.392.496 eigin hluti, eða um 1,39% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.