Transaction in Own Shares • Aug 7, 2023
Transaction in Own Shares
Open in ViewerOpens in native device viewer
Disclosure 435877
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 31. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 662.000 eigin hluti að kaupverði 56.404.119 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
| Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 10:02 | 100.000 | 85,75 | 8.575.000 | 15.996.233 |
| 10:55 | 8.175 | 85,00 | 694.875 | 16.004.408 |
| 14:04 | 128.825 | 85,75 | 11.046.744 | 16.133.233 |
| 10:45 | 150.000 | 85,50 | 12.825.000 | 16.283.233 |
| 13:38 | 75.000 | 85,50 | 6.412.500 | 16.358.233 |
| 09:33 | 100.000 | 85,00 | 8.500.000 | 16.458.233 |
| 10:43 | 100.000 | 83,50 | 8.350.000 | 16.558.233 |
| 662.000 | 56.404.119 | 16.558.233 |
Reitir hafa nú keypt samtals 4.520.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 75,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 372.968.119 kr. sem samsvarar 71,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Reitir eiga nú samtals 16.558.233 eigin hluti, eða um 2,22% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.