AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Oct 16, 2023

2202_dirs_2023-10-16_8d8817c2-ece2-41bd-9a86-ef981ad62a97.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 438224

Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 41

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 41. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 510.646 eigin hluti að kaupverði 40.898.143 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
9/10/23 09:40 97.600 80,50 7.856.800 18.300.333
10/10/23 09:40 102.325 80,50 8.237.163 18.402.658
11/10/23 09:54 103.721 80,00 8.297.680 18.506.379
12/10/23 09:51 100.000 80,00 8.000.000 18.606.379
13/10/23 10:06 107.000 79,50 8.506.500 18.713.379
Samtals 510.646 40.898.143 18.713.379

Reitir hafa nú keypt samtals 675.146 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 12,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 54.120.018 kr. sem samsvarar 11,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 18.713.379 eigin hluti, eða um 2,51% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.