AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Regulatory Filings Oct 18, 2024

2202_rns_2024-10-18_7d7f4066-9b28-44d3-96c6-6e7535f5597e.html

Regulatory Filings

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Reitir fjárfesta fyrir 1,7 ma.kr. í Hvörfunum Kópavogi

Reitir fjárfesta fyrir 1,7 ma.kr. í Hvörfunum Kópavogi

18. október 2024

Reitir hafa undirritað samkomulag um kaup félagsins á fasteignum í atvinnuhúsnæði að Tónahvarfi 3 í Kópavogi. Fasteignirnar eru um 3.750 fm. að stærð og hýsa fjölbreyttan rekstur nokkurra leigutaka.

Heildarvirði kaupanna er 1,7 ma.kr. sem verður að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé. Leigutekjur á ársgrunni nema um 150 m.kr. og leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 120 m.kr. á ársgrundvelli. 

Áætlað er að afhending fasteignanna muni fara fram 1. desember 2024. Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana og samþykki stjórnar Reita fasteignafélags hf. fyrir kaupunum.

Nánari upplýsingar veita:

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags í síma 624 0000 og á [email protected].

Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdarstjóri Fjárfestinga og greiningar í síma 659 1700 og á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.