Quarterly Report • Aug 22, 2024
Quarterly Report
Open in ViewerOpens in native device viewer
Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar
1. janúar til 30. júní 2024
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
|---|---|
| Könnunaráritun óháðs endurskoðanda | 5 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 6 |
| Efnahagsreikningur | 7 |
| Eiginfjáryfrilit | 8 |
| Sjóðstreymisyfirlit | 9 |
| Skýringar | 10 |
| Ársfjórðungsyfirlit um heildarafkomu | 16 |
Starfsemi Reita fasteignafélags hf. felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunarog skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt sjö dótturfélögum sem öll eru 100% í eigu móðurfélagsins. Árshlutareikningurinn er kannaður af endurskoðendum félagsins.
Um miðjan júní sl. varð eldur laus í þakklæðningu Kringlunnar og varð tjón vegna hans minna en hefði getað orðið. Til viðbótar við lögbundna brunatryggingu hafa Reitir einnig rekstrarstöðvunartryggingu sem er ætlað að ná yfir tjón af þessu tagi, bæði vegna brunans og mögulegs tekjutaps. Mat á umfangi tjónsins stendur yfir og er unnið að úrlausn mála í samstarfi við tryggingafélög. Gert er ráð fyrir að heildarniðurstaða skýrist á næstu mánuðum, þó einstök mál geti tekið lengri tíma.
Félagið metur tryggingastöðu sína vegna brunans góða og mun gefa frekari upplýsingar þegar endanlegt mat liggur fyrir.
Rekstur Reita á fyrri hluta ársins 2024 gekk vel og er niðurstaða rekstrar í takti við útgefnar horfur um afkomu. Leigutekjur og rekstrarhagnaður vaxa umfram verðlag og hefur lækkun verðbólgu undanfarið haft jákvæð á áhrif fjármagnsgjöld samanborið við fyrra ár. Matshækkun fjárfestingareigna á fyrri hluta ársins nam tæpum 12,3 milljörðum króna.
Áformum félagsins um stækkun eignasafnsins hefur verið fylgt eftir af krafti og hefur félagið á fyrstu sex mánuðum ársins fjárfest innan og utan eignasafnsins fyrir tæpa sex milljarða. Eftir lok reikningsskilatímabilsins hefur félagið fjárfest í eignum fyrir 1,4 milljarða og önnur viðskipti að fjárhæð tæpir 1,5 milljarðar eru í vinnslu.
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam rekstrarhagnaður af rekstri samstæðunnar 5.242 millj. kr. og heildarhagnaður 9.253 millj. kr. á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2024. Heildareignir samstæðunnar í lok júní námu 212.441 millj. kr. og eigið fé var 66.381 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall var 31,2% í lok árshlutans.
Í lok ársfjórðungsins voru hluthafar í Reitum fasteignafélagi hf. 868 en þeir voru 837 í ársbyrjun.
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu.
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuárshlutareikningur félagsins gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2024 og rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2024.
Jafnframt er það álit okkar að samstæðuárshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og, í samhengi við ársreikning samstæðunnar, lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Reita fasteignafélags hf. hafa í dag fjallað um samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 22. ágúst 2024
Í stjórn félagsins:
Þórarinn V. Þórarinsson
Elín Árnadóttir Kristinn Albertsson
Anna Kristín Pálsdóttir Guðmundur Kristján Jónsson
Forstjóri:
Guðni Aðalsteinsson
Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn samstæðuárshlutareikning Reita fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit og skýringar.
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samandregna samstæðuárshlutareikningsins í samræmi við reikningsskilastaðal IAS 34 um árshlutareikningsskil eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.
Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.
Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slík könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós.
Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samandregni samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðunnar á tímabilinu, efnahag hennar 30. júní 2024 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við reikningsskilastaðal IAS 34 um árshlutareikningsskil eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.
Reykjavík, 22. ágúst 2024
Deloitte ehf.
Geir Steindórsson endurskoðandi

| Skýr. | 2024 | 2023 | 2024 | 2023 | |||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1.4. -30.6.* | 1.4. -30.6.* | 1.1. -30.6. | 1.1. -30.6. | ||||||
| Rekstrartekjur og rekstrargjöld | |||||||||
| Leigutekjur | 6 | 4.020 | 3.732 | 7.941 | 7.351 | ||||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | 7 | ( | 1.093) | ( | 1.049) | ( | 2.177) | ( | 2.062) |
| Hreinar leigutekjur | 2.927 | 2.683 | 5.764 | 5.289 | |||||
| Stjórnunarkostnaður | ( | 226) | ( | 183) | ( | 522) | ( | 381) | |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 2.701 | 2.500 | 5.242 | 4.908 | |||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 10 | 8.902 | 7.538 | 12.268 | 10.046 | ||||
| Rekstrarhagnaður | 11.603 | 10.038 | 17.510 | 14.954 | |||||
| Fjármunatekjur | 73 | 50 | 154 | 97 | |||||
| Fjármagnsgjöld | ( | 3.198) | ( | 3.113) | ( | 5.890) | ( | 6.585) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | ( | 3.125) | ( | 3.063) | ( | 5.736) | ( | 6.488) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 8.478 | 6.975 | 11.774 | 8.466 | |||||
| Tekjuskattur | ( | 1.761) | ( | 1.366) | ( | 2.521) | ( | 1.719) | |
| Hagnaður og önnur heildarafkoma | 6.717 | 5.609 | 9.253 | 6.747 | |||||
| Hagnaður á hlut |
| Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut | 9,5 | 7,6 | 13,0 | 9,1 |
|---|---|---|---|---|
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
* Hvorki kannað né endurskoðað af ytri endurskoðanda félagsins
| Skýr. | 30.6.2024 | 31.12.2023 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Fjárfestingareignir | 10 | 208.766 | 189.971 |
| Eignir til eigin nota | 221 | 223 | |
| Fastafjármunir | 208.987 | 190.194 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 9 | 1.330 | 1.779 |
| Bundið fé | 157 | 131 | |
| Handbært fé | 1.967 | 1.277 | |
| Veltufjármunir | 3.454 | 3.187 | |
| Eignir samtals | 212.441 | 193.381 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 701 | 722 | |
| Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár | 19.568 | 21.233 | |
| Annað bundið eigið fé | 10.583 | 4.168 | |
| Óráðstafað eigið fé | 35.529 | 34.150 | |
| Eigið fé | 11 | 66.381 | 60.273 |
| Skuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 12 | 112.113 | 98.380 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 19.336 | 16.815 | |
| Leiguskuldbinding | 6.420 | 5.987 | |
| Langtímaskuldir | 137.869 | 121.182 | |
| Vaxtaberandi skuldir | 12 | 5.976 | 10.052 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 2.215 | 1.874 | |
| Skammtímaskuldir | 8.191 | 11.926 | |
| Skuldir samtals | 146.060 | 133.108 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 212.441 | 193.381 |
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
| 1. janúar - 30. júní 2023 | Skýr. | Hlutafé | Yfirverðs reikningur innborgaðs hlutafjár |
Bundið eigið fé |
Óráðstafað eigið fé |
Eigið fé samtals |
|||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Eigið fé 1. janúar 2023 | 746 | 23.133 | 4.056 | 28.169 | 56.104 | ||||||
| Heildarafkoma tímabilsins | 6.747 | 6.747 | |||||||||
| Innleyst af bundnu eigið fé | ( | 3.496) | 3.496 | 0 | |||||||
| Fært á bundið eigið fé | 7.145 | ( | 7.145) | 0 | |||||||
| Greiddur arðgreiðsla | ( | 1.403) | ( | 1.403) | |||||||
| Endurkaup á eigin bréfum | ( | 13) | ( | 1.065) | ( | 1.078) | |||||
| Eigið fé 30. júní 2023 | 11 | 733 | 22.068 | 7.705 | 29.864 | 60.370 | |||||
| 1. janúar - 30. júní 2024 | |||||||||||
| Eigið fé 1. janúar 2024 | 722 | 21.233 | 4.168 | 34.150 | 60.273 | ||||||
| Heildarafkoma tímabilsins | 9.253 | 9.253 | |||||||||
| Innleyst af bundnu eigið fé | ( | 3.616) | 3.616 | 0 | |||||||
| Fært á bundið eigið fé | 10.031 | ( | 10.031) | 0 | |||||||
| Greiddur arður | ( | 1.459) | ( | 1.459) | |||||||
| Endurkaup á eigin bréfum | ( | 21) | ( | 1.665) | ( | 1.686) | |||||
| Eigið fé 30. júní 2024 | 11 | 701 | 19.568 | 10.583 | 35.529 | 66.381 |
Frekari upplýsingar um breytingu á bundnu eigið fé er að finna í skýringu 11.
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
| Skýr. | 2024 1.1.-30.6. |
2023 1.1.-30.6. |
|||
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||||
| Hagnaður tímabilsins | 9.253 | 6.747 | |||
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 10 | ( | 12.268) | ( | 10.046) |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | 5.736 | 6.488 | ||
| Afskriftir | 3 | 3 | |||
| Tekjuskattur | 2.521 | 1.719 | |||
| 5.245 | 4.911 | ||||
| Skammtímakröfur, breyting | 446 | ( | 154) | ||
| Skammtímaskuldir, breyting | 276 | 568 | |||
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | 722 | 414 | |||
| Innheimtar vaxtatekjur | 154 | 102 | |||
| Greidd vaxtagjöld | ( | 1.834) | ( | 1.590) | |
| Greidd lóðaleiga | ( | 140) | ( | 141) | |
| Handbært fé frá rekstri | 4.147 | 3.696 | |||
| Fjárfestingarhreyfingar | |||||
| Kaupverð nýrra fjárfestingareigna | 10 | ( | 1.384) | ( | 158) |
| Fjárfesting í endurbótum á fjárfestingareignum | 10 | ( | 4.594) | ( | 2.918) |
| Breyting á eignum til eigin nota | ( | 1) | 0 | ||
| (Kröfur) skuld vegna fjárfestingareigna | 36 | ( | 234) | ||
| Bundið fé, breyting | ( | 26) | 690 | ||
| Fjárfestingarhreyfingar | ( | 5.969) | ( | 2.620) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||||
| Tekin ný langtímalán | 12 | 13.385 | 11.919 | ||
| Afborganir langtímalána | 12 | ( | 7.729) | ( | 7.133) |
| Greiddur arður | 11 | ( | 1.459) | ( | 1.403) |
| Endurkaup á eigin bréfum | 11 | ( | 1.686) | ( | 1.078) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 2.511 | 2.305 | |||
| Hækkun á handbæru fé | 689 | 3.381 | |||
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 1 | 1 | |||
| Handbært fé í ársbyrjun | 1.277 | 42 | |||
| Handbært fé í lok tímabilsins | 1.967 | 3.424 | |||
| Fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa |
| Fjárfesting í fjárfestingareignum | 10 | ( | 114) | 0 |
|---|---|---|---|---|
| Yfirteknar skuldir | 114 | 0 |
Skýringar á blaðsíðum 10 - 15 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuárshlutareikningnum.
Reitir fasteignafélag hf. ("félagið") kt. 711208-0700 er íslenskt hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru í Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem eru Reitir atvinnuhúsnæði ehf., Reitir - þróun ehf., Norðurslóð 4 ehf., Reitir þjónusta ehf., H176 Reykjavík ehf., Kringlureitur ehf. og Reitir AH 1 ehf. sem vísað er til í heild sem samstæðunnar og til einstakra félaga sem samstæðufélaga eða dótturfélaga.
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2023.
Stjórn félagsins staðfesti samstæðuárshlutareikninginn 22. ágúst 2024.
Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir árið 2023. Hægt er að nálgast ársreikninginn hjá félaginu eða á vef þess www.reitir.is.
Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningshaldslegt mat hefur mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda er að finna í skýringu 10 Mat fjárfestingareigna.
Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum, sem er starfsrækslugjaldmiðill félagsins, og eru allar fjárhæðir birtar í milljónum króna. Hann er gerður á grundvelli kostnaðarverðs, að því undanskildu að fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði.
Gerð árshlutareikninga í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.
Starfsþáttayfirlit veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins. Starfsemi skiptist í fimm starfsþætti sem er rekstur mismunandi tegunda fasteigna.
| Iðnaður og | ||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Skrifstofur | Verslun | Hótel | annað | Þróun | Annað | Jöfnun | Samtals | |
| Leigutekjur | 2.749 | 2.817 | 1.194 | 1.125 | 45 | 463 | ( 452) |
7.941 |
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna |
( 807) |
( 864) |
( 233) |
( 217) |
( 55) |
( 1) |
0 | ( 2.177) |
| Hreinar leigutekjur | 1.942 | 1.953 | 961 | 908 | ( 10) |
462 | ( 452) |
5.764 |
| Stjórnunarkostnaður ( | 157) | ( 178) |
( 64) |
( 60) |
( 10) |
( 505) |
452 | ( 522) |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu … |
1.785 | 1.775 | 897 | 848 | ( 20) |
( 43) |
0 | 5.242 |
| Matsbreyting fjárfestingareigna … |
3.696 | 4.014 | 1.673 | 2.572 | 313 | 0 | 0 | 12.268 |
| Rekstrarhagnaður … | 5.481 | 5.789 | 2.570 | 3.420 | 293 | ( 43) |
0 | 17.510 |
| Hrein fjármagnsgjöld Tekjuskattur |
( 5.736) ( 2.521) |
|||||||
| Heildarhagnaður … | 9.253 | |||||||
| Staða 30. júní 2024 | ||||||||
| Fjárfestingareignir án nýtingaréttar lóðarleigusamninga … |
67.108 | 69.201 | 28.375 | 27.877 | 9.785 | 202.346 |

| 1.1 - 30.6 Iðnaður og Skrifstofur Verslun Hótel annað Þróun Annað Jöfnun Samtals Leigutekjur 2.686 2.539 1.146 979 55 426 ( 480) 7.351 Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna ( 757) ( 866) ( 249) ( 196) ( 55) 0 61 ( 2.062) Hreinar leigutekjur 1.929 1.673 897 783 0 426 ( 419) 5.289 Stjórnunarkostnaður ( 167) ( 145) ( 60) ( 53) ( 8) ( 367) 419 ( |
|
|---|---|
| 381) | |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu… 1.762 1.528 837 730 ( 8) 59 0 4.908 |
|
| Matsbreyting fjárfestingareigna … 4.101 1.900 900 2.701 444 0 0 10.046 |
|
| Rekstrarhagnaður … 5.863 3.428 1.737 3.431 436 59 0 14.954 |
|
| Hrein fjármagnsgjöld ( 6.488) Tekjuskattur ( 1.719) |
|
| Heildahagnaður … 6.747 |
|
| Staða 30. júní 2023 | |
| Fjárfestingareignir án nýtingaréttar lóðarleigusamninga … 61.432 59.854 26.955 23.464 7.612 179.317 |
| 2024 | 2023 | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| 1.1.-30.6. | 1.1.-30.6. | ||||
| Áætlaðar heildarleigutekjur | 8.376 | 7.656 | |||
| Reiknaðar tekjur af óútleigðum rýmum | ( | 435) | ( | 305) | |
| 7.941 | 7.351 | ||||
| Nýtingarhlutfall fasteigna | 94,8% | 96,0% | |||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | |||||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna greinist þannig: | |||||
| Fasteignagjöld | 1.227 | 1.198 | |||
| Viðhald og endurbætur | 543 | 508 | |||
| Vátryggingar | 135 | 108 | |||
| Virðisrýrnun krafna | 12 | 17 | |||
| Annar rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | 260 | 231 | |||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna alls | 2.177 | 2.062 | |||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna sem ekki mynduðu leigutekjur á árinu er óverulegur. | |||||
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld Fjármunatekjur greinast þannig: |
|||||
| Vaxtatekjur af bankareikningum | 88 | 47 | |||
| Vaxtatekjur af lánum og kröfum | 66 | 50 | |||
| Fjármunatekjur alls | 154 | 97 | |||
| Fjármagnsgjöld greinast þannig: | |||||
| Vaxtagjöld af vaxtaberandi skuldum | ( | 1.831) | ( | 1.618) | |
| Verðbætur af vaxtaberandi skuldum | ( | 3.846) | ( | 4.778) | |
| Lóðarleiga | ( | 140) | ( | 141) | |
| Önnur fjármagnsgjöld | ( | 73) | ( | 48) | |
| Fjármagnsgjöld alls | ( | 5.890) | ( | 6.585) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( | 5.736) | ( | 6.488) | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | |||||
| 30.6.2024 | 31.12.2023 | ||||
| Viðskiptakröfur vegna leigu og skuldabréf | 720 | 1.081 | |||
| Virðisaukaskattseign | 291 | 411 | |||
| Fjármagnstekjuskattur | 61 | 39 |
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur sundurliðast þannig:
| 30.6.2024 | 31.12.2023 | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Nafnverð | Niðurfærsla | Nafnverð | Niðurfærsla | ||||
| Kröfu | kröfu | Kröfu | kröfu | ||||
| Ógjaldfallið | 1.092 | ( | 86) | 1.431 | ( | 85) | |
| Gjaldfallið innan 30 daga | 176 | ( | 7) | 341 | ( | 15) | |
| Gjaldfallið fyrir 31-120 dögum | 71 | ( | 10) | 28 | ( | 9) | |
| Gjaldfallið fyrir meira en 120 dögum | 428 | ( | 334) | 419 | ( | 331) | |
| 1.767 | ( | 437) | 2.219 | ( | 440) |
| Fjárfestingareignir sundurliðast þannig: | 30.6.2024 | 31.12.2023 |
|---|---|---|
| 1.1.-30.6. | 1.1.-31.12. | |
| Bókfært verð 1.1 | 183.982 | 166.394 |
| Kaup tímabilsins | 1.498 | 670 |
| Viðbætur tímabilsins | 4.597 | 6.618 |
| Selt á tímabilinu | 0 | ( 450) |
| Matsbreyting tímabilsins | 12.269 | 10.750 |
| Bókfært verð í lok tímabils | 202.346 | 183.982 |
| Fasteignir | 192.561 | 175.367 |
| Þróunareignir | 9.785 | 8.615 |
| 202.346 | 183.982 | |
| Nýtingaréttur lóðarleigusamninga | 6.420 | 5.989 |
| Fjárfestingareignir samtals | 208.766 | 189.971 |
Við ákvörðun á gangvirði fjárfestingareigna er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð kann að verða frábrugðið þessu mati.
Fjárfestingareignir samstæðunnar eru metnar á gangvirði á reikningsskiladegi í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 40 Fjárfestingareignir og alþjóðlegan reikningsskilastaðal IFRS 13 Mat á gangvirði . Allar fjárfestingareignir samstæðunnar falla undir þriðja þrep í flokkunarkerfi gangvirðismats og eru metnar sem slíkar.
Við mat á fjárfestingareignum er notuð sama aðferðarfræði og í samstæðuársreikningi félagsins. Breytingar frá áramótum endurspegla þá þróun sem verið hefur í verðlagi, ávöxtunarkröfu, metnum framtíðarleigutekjum og áhrifum fasteignamats fyrir árið 2025. Mikilvægustu forsendur matslíkansins eru áætlun um framtíðarleigutekjur og veginn fjármagnskostnaður (WACC). Gert er ráð fyrir 6,6% vegnum fjármagnkostnaði í matinu (31.12.2023 6,7%).
Breytingar á gangvirði fjárfestingareigna eru færðar undir liðnum matsbreyting fjárfestingareigna í rekstrarreikningi. Hækkun á mati fjárfestingareigna nam 12.268 millj. kr. á tímabilinu (2023: 10.046 millj. kr.).
Næmi fjárfestingareigna fyrir breytingum í mikilvægustu forsendum er sem hér segir:
| Áhrif á gangvirði 30.6.2024 | |||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Breyting | Hækkun | Lækkun | |||||
| Veginn fjármagnskostnaður (WACC) | -/+ ½% | 15.135 | ( | 13.026) | |||
| Metnar framtíðarleigutekjur | +/- 1% | 9.063 | ( | 9.063) |
Skráð heildarhlutafé félagsins í lok ársfjórðungsins nam 712 millj. kr. Við lok ársfjórðungsins átti félagið eigin hlutabréf að nafnverði 21 millj. kr. Lækkun hlutafjár vegna eigin hlutabréfa að nafnvirði 34 millj. kr. var samþykkt á aðalfundi félagsins 6. mars 2024. Formleg skráning lækkunarinnar fór fram 27. mars sl.
Arðgreiðsla að fjárhæð 2,05 kr. á hlut eða 1.459 millj. kr., sem samþykkt var á aðalfundi 6. mars 2024, var greidd 27. mars 2024.
| Bundnir hlutdeildarreikningar sundurliðast þannig: | Bundinn | ||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| hlutdeildar- | Bundið eigð fé samtals |
||||||||
| Lögbundinn | Endurmats- | reikningur | |||||||
| varasjóður | reikningur | dótturfélaga | |||||||
| Bundið eigið fé 1. janúar 2023 | 451 | 109 | 3.496 | 4.056 | |||||
| Innleyst af bundnu eigið fé | ( | 3.496) | ( | 3.496) | |||||
| Fært á bundið eigið fé | 7.145 | 7.145 | |||||||
| Bundið eigið fé 30. júní 2023 | 451 | 109 | 7.145 | 7.705 | |||||
| Eigið fé 1. janúar 2024 | 451 | 101 | 3.616 | 4.168 | |||||
| Innleyst af bundnu eigið fé | ( | 3.616) | ( | 3.616) | |||||
| Fært á bundið eigið fé | 10.031 | 10.031 | |||||||
| Bundið eigið fé 30. júní 2024 | 451 | 101 | 10.031 | 10.583 |
| Langtímaskuldir | 30.6.2024 | 31.12.2023 | ||
|---|---|---|---|---|
| Vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir, innan tryggingarfyrirkomulags | 8.963 | 3.714 | ||
| Vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir, utan tryggingarfyrirkomulags | 98 | 0 | ||
| Skuldabréfaútgáfa, innan tryggingarfyrirkomulags | 109.222 | 104.565 | ||
| Skuldabréfaútgáfa, utan tryggingarfyrirkomulags | 744 | 775 | ||
| Vaxtaberandi skuldir alls án lántökukostnaðar | 119.027 | 109.054 | ||
| Næsta árs afborganir langtímalána Eignfærður lántökukostnaður Vaxtaberandi langtímaskuldir alls |
( ( |
5.976) 938) 112.113 |
( ( |
10.052) 622) 98.380 |
| Skammtímaskuldir Næsta árs afborganir langtímaskulda |
5.976 5.976 |
10.052 10.052 |
||
| Vaxtaberandi skuldir alls | 118.089 | 108.432 |
| 2F 2024 |
1F 2024 |
4F 2023 |
3F 2023 |
2F 2023 |
||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur og rekstrargjöld | ||||||||||
| Leigutekjur | 4.020 | 3.921 | 3.914 | 3.842 | 3.732 | |||||
| Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | ( | 1.093) | ( | 1.084) | ( | 962) | ( | 1.102) | ( | 1.049) |
| Hreinar leigutekjur | 2.927 | 2.837 | 2.952 | 2.740 | 2.683 | |||||
| Stjórnunarkostnaður | ( | 226) | ( | 296) | ( | 213) | ( | 237) | ( | 183) |
| Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 2.701 | 2.541 | 2.739 | 2.503 | 2.500 | |||||
| Matsbreyting fjárfestingareigna | 8.902 | 3.366 | 3.479 | ( | 2.775) | 7.538 | ||||
| Rekstrarhagnaður | 11.603 | 5.907 | 6.218 | ( | 272) | 10.038 | ||||
| Fjármunatekjur | 73 | 81 | 59 | 90 | 50 | |||||
| Fjármagnsgjöld | ( | 3.198) | ( | 2.692) | ( | 2.315) | ( | 2.196) | ( | 3.113) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( | 3.125) | ( | 2.611) | ( | 2.256) | ( | 2.106) | ( | 3.063) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 8.478 | 3.296 | 3.962 | ( | 2.378) | 6.975 | ||||
| Tekjuskattur | ( | 1.761) | ( | 760) | ( | 1.276) | 449 | ( | 1.366) | |
| Hagnaður tímabilsins | 6.717 | 2.536 | 2.686 | ( | 1.929) | 5.609 | ||||
| Endurmat | 0 | 0 | ( | 10) | 0 | 0 | ||||
| Tekjuskattur | 0 | 0 | 2 | 0 | 0 | |||||
| Önnur heildarafkoma samtals | 0 | 0 | ( | 8) | 0 | 0 | ||||
| Heildarhagnaður | 6.717 | 2.536 | 2.678 | ( | 1.929) | 5.609 |
* Hvorki kannað né endurskoðað af ytri endurskoðanda félagsins
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.