Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Reitir fasteignafélag Proxy Solicitation & Information Statement 2026

Mar 19, 2026

2202_rns_2026-03-19_a8dba708-72b8-48ec-8760-4e81f887cd3d.html

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

REITIR: Endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar á aðalfundi 25. mars 2026

REITIR: Endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar á aðalfundi 25. mars 2026

Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 15.00 í fundarsal H og I á Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Léttar veitingar verða í boði að fundi loknum.

Endanleg dagskrá er eftirfarandi:

  1. Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.
  2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.
  4. Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund:
    1. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum
    2. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar eigin hluta
    3. Tillaga um breytingu á samþykktum
    4. Tillaga um starfskjarastefnu
    5. Tillaga um skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
    6. Tillaga um kosningu utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd
  5. Kosning stjórnarmanna félagsins.
  6. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
  7. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár.
  8. Önnur mál, löglega upp borin.

Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn félagsins:

Anna Kristín Pálsdóttir

Árni Sigurjónsson

Elín Árnadóttir

Kristinn Albertsson

Pálmar Óli Magnússon

Framboðsfrestur er nú runninn út samkvæmt samþykktum félagsins og hafa frekari framboð ekki borist. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm einstaklingum og er því ljóst að framangreindir aðilar eru sjálfkjörnir til setu í stjórn félagsins á aðalfundinum án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna hér á heimasíðu Reita.

Hluthafar og umboðsmenn þeirra geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14.30 á aðalfundardag. Þeir hluthafar sem þess óska geta forskráð sig á aðalfundinn og munu atkvæðaseðlar þeirra þá vera tilbúnir er mætt er á fundinn og afhentir gegn framvísun umboðs (ef við á) og skilríkja. Forskráning fer fram með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið [email protected], fyrir kl. 13.00 á aðalfundardegi. Upplýsingarnar eru: kennitala hluthafa, nafn þess sem mætir, kennitala þess sem mætir og skannað eintak af umboði (ef við á) en að auki þarf að mæta með frumrit þess á fundinn.