Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Reitir fasteignafélag Proxy Solicitation & Information Statement 2020

Aug 24, 2020

2202_rns_2020-08-24_01422d19-9b3a-4d24-b695-d92ca15ad98a.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

reitir.is

Hluthafundur

Hluthafundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, þriðjudaginn 22. september 2020 í fundarsölum H og I á Hotel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 105 Reykjavík.

Vakin er athygli á því að tilhögun fundarhalda verður í samræmi við þær sóttvarnarreglur sem í gildi verða á fundardegi, svo sem með því að takmarka aðgang að fundarsal og bjóða þá þess í stað upp á streymi, eða með öðrum hætti, að gættum öllum reglum hlutafélagalaga um hluthafundri. Verða breytingar þar að lútandi tilkynntar í kauphöll eigi síðar en þremur sólarhring fyrir fundinn.

Dagskrá fundar

  1. Tillaga stjórnar um heimild til hlutafjárhækkunar.
  2. Tillaga stjórnar um læk kun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum.
  3. Önnur mál, löglega upp borin.

Upplýsingar

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboðsform er að finna á hluthafundarvef félagsins, www.reitir.is/hluthafundir. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.

Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Verði breyting þar á vegna gildandi sóttvarnarreglna á fundardegi, verður tilkynnt um þær í kauphöll eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir fundinn. Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 15.00 fimtudaginn 17. september 2020.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir hluthafundinn, þ.e. fyrir kl. 15:00 að íslenskum tíma, laugardaginn 12. september 2020. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected] og munu þær verða birtar samdægurs á hluthafundarvef félagsins.

Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum komi fram krafa um slíkt á fundinum frá einhverjum atkvæðisbærra fundarmanna eða fundarstjóri úrskurðar um slíkt.

Hluthafundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn, sbr. 13. gr. samþykka félagsins.

Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Dagskrá hluthafundarins og fundargögn, þ.á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir fundinn verða aðgengileg á hluthafundarvef félagsins. Einnig verða gögnin til sýnis fyrir hluthafa á opnunartíma skrifstofu félagsins í Kringlunni 4–12 í Reykjavík. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar á hluthafundarvef félagsins eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir fundinn.

Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á hluthafundinn á fundarstað frá kl. 14:30 á fundardag.

Reykjavík, 24. ágúst 2020

Stjórn Reita fasteignafélags hf.

REITIR
FASTEIGNAFÉLAG