Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Reitir fasteignafélag Proxy Solicitation & Information Statement 2020

Sep 18, 2020

2202_rns_2020-09-18_0dd380bb-2449-4a05-b319-0da2de67dd78.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

:R

reitir.is

Reitir fasteignafélag hf.
Hluthafundur 22. september 2020

Endanlegar tillögur stjórnar til hluthafundar:

  1. Tillaga um heimild til hlutafjárhækknar.

Stjórn félagsins leggur til að hluthafundur Reita fasteignafélags hf. sem haldinn er þann 22. september 2020 veiti stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 120.000.000 hluti að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Efnt verður til forgangsréttarútboðs til hluthafa til að safna áskriftum að hinum nýju hlutum, en einnig verða hinir nýju hlutir boðnir í almennú útboði sem haldið verður samhliða forgangsréttarútboðinu. Stjórn er veitt heimild til að ákvarða útboðsgengi hluta, áskriftar- og greiðslufresti og sölureglur útboðsins að öðru leyti. Hinir nýju hlutir verða í sama flokki og annað útgefið hlutafé í félaginu. Hinir nýju hlutir munu veita rétt í félaginu frá skráningardegi þeirra. Heimild þessi skal gilda til 31. desember 2020 og fellur þá niður að því marki sem hún hefur ekki verið nýtt.

Við sambýkktir félagsins bætist þá svohljóðandi bráðabirgðaákvæði:

„Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt að 120.000.000 hluti að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta sem boðnir verða hluthöfum félagsins í forgangsréttarútboði auk þess sem almennt útboð verður haldið samhliða. Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi hinna nýju hluta, áskriftar- og greiðslufresti og sölureglur útboðsins. Stjórn félagsins skal heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á sambýkktum félagsins í tengslum við útgáfuna. Heimild þessi fellur úr gildi eigi síðar en 31. desember 2020.“

  1. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum

Stjórn félagsins leggur til að eftirfarandi tillaga um lækkun á hlutafé þess verði sambýkkt:

„Hluthafundur Reita fasteignafélags hf. sambýkkir að hlutafé félagsins verði lækkað um 11.380.000 kr. að nafnvirði, eða sem nemur 11.380.000 hlutum, til jöfnunar eigin hluta. Lækkunin tekur eingöngu til eigin hluta félagsins sem það hefur eignast með kaupum í samræmi við endurkaupaáætlun stjórnar sem að alfundur félagsins þann 10. mars 2020 veitti heimild fyrir. Hlutafjártala 4. gr. sambýkkta félagsins skal taka breytingum í samræmi við niðurfærslu hlutafjár, og mun þannig lækka úr 669.856.201 kr. í 658.476.201 kr. Lækkunin verður framkvæmd þegar lögmælt skilyrði eru uppfyllt.“

Af sambýkkt framangreindrar tillögu leiðir að 4. gr. sambýkkta félagsins mun hljóða þannig:

„Hlutafé félagsins er 658.476.201 kr. – sexhundruðfimmtíuogáttamilljónir fjögurhundruðsjötiuogsexpúsund tvöhundruðogein króna. Hver hlutur er að fjárhæð 1 kr. – ein króna – að nafnvirði eða margfeldi þeirrar fjárhæðar. Hlutir skulu hljóða á nafn.“

Reykjavík, 18. september 2020

Stjórn Reita fasteignafélags hf.