AI assistant
Reitir fasteignafélag — Proxy Solicitation & Information Statement 2016
Feb 22, 2016
2202_rns_2016-02-22_a172993a-65e5-459d-b13a-6054a19b9c12.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur Reita fasteignafélags hf.
Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn
kl. 16.00, þriðjudaginn 15. mars 2016 í Þingsal 3
á Hotel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík.
Dagskrá fundar
- Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.
- Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.
- Ákvörðun um greiðlsu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.
- Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund:
a. Tillaga um breytingar á starfskjarastefnu félagsins.
b. Tillaga um heimild til kaupa á eigir hlutabréfum.
c. Tillögur um breytingar á samþykktum: - Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigir hlutum.
- Tillaga um breytingar á framboðsfresti til stjórnar.
- Kjör stjórnarmanna félagsins.
- Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Ákvörðun um laun stjórnar og undirnefnda stjórnar fyrir komandi starfsár.
- Önnur mál, löglega upp borin.
Upplýsingar
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboðsform er að finna á aðalfundarvef félagsins, www.reitir.is/adalfundir. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 5. mars 2016. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á netfangið [email protected] og munu þær verða birtar samdægurs á aðalfundarvef félagsins.
Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum komi fram krafa um slíkt á fundinum frá einhverjum atkvæðisbærra fundarmanna eða fundarstjóri úrskurðar um slíkt. Stjórnarkjör skal vera skriflegt ef framboð koma frá fleirum en kjósa skal um. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum.
Tilkynningum um framboð til stjórnar félagsins skal skilað eigi síðar en fimm dögum fyrir dagsetningu aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 10. mars 2016, á skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík eða á netfangið [email protected]. Framboðstilkynningar skulu uppfylla skilyrði 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Framboðseyðublað er að finna á aðalfundarvef félagsins. Upplýsingar um frambjódendur verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn, sbr. 13. gr. samþykktá félagsins.
Dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ.á.m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund verða aðgengileg á aðalfundarvef félagsins. Einnig verða gögnin til sýnis fyrir hluthafa á opnunartíma skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 15:15 á aðalfundardag. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 17. febrúar 2016.
Stjórn Reita fasteignafélags hf.
Kringlan 4–12
103 Reykjavík
www.reitir.is
575 9000
REITIR
Velkomin til starfa