AI assistant
Reitir fasteignafélag — Proxy Solicitation & Information Statement 2015
Apr 8, 2015
2202_rns_2015-04-08_10b27c37-9706-415e-aee9-1ca4dee8a88d.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur Reita fasteignafélags hf.
Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 14.00, fimmtudaginn 30. apríl 2015 í Þingsal 2 á Hotel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík.
Dagskrá fundar
- Stjórn skýrir frá rekstri félags og hag þess á liðnu ári.
- Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.
- Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á síðastliðnu starfsári.
- Tillögur stjórnar, lagðar fyrir aðalfund:
a. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
b. Tillaga um stefnu félagsins um ráðstöfun verðmæta til hluthafa.
c. Tillaga um heimild til kaupa á eigir hlutum skv. 55. gr. laga um hlutafélög.
d. Tillaga um breytingu á samþykktum, en m.a er lagt til að ekki verði varamenn í stjórn félagsins og að heimild til kaupa á eigir hlutabréfum verði sett fram í viðauka við samþykktir félagsins. - Kjör stjórnarmanna félagsins.
- Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Ákvörðun um laun stjórnar og undirnefnda stjórnar fyrir komandi starfsár.
- Önnur mál, löglega upp borin.
Upplýsingar
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en tvær vikur eru til aðalfundarins.
Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum komi fram krafa um slíkt á fundinum frá einhverjum atkvæðisbærra fundarmanna. Stjórnarkjör skal vera skriflegt ef tillögur koma fram um fleiri stjórnarmenn en kjósa skal um. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum.
Tilkynningum um framboð til stjórnar félagsins skal skilað til skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík eigi síðar en fimm dögum fyrir dagsetningu aðalfundar. Framboðstilkynningur skulu uppfylla skilyrði 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Upplýsingar um frambjódendur verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn, sbr. 13. gr. samþykktá félagsins.
Fundargögn verða aðgengileg á vefsvæði félagsins, www.reitir.is/fjarfestar. Einnig verða gögnin til sýnis fyrir hluthafa á skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum fyrir aðalfund.
Reykjavík, 8. apríl 2015
Stjórn Reita fasteignafélags hf.
Kringlan 4-12
103 Reykjavík
www.reitir.is
575 9000
REITIR
Velkomin til starfa