AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Pre-Annual General Meeting Information Jan 9, 2024

2202_agm-r_2024-01-09_87f96edd-73e7-49ad-84b3-853676768d95.html

Pre-Annual General Meeting Information

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 441135

Reitir fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

Hluthafafundur í Reitum fasteignafélagi hf. 1. febrúar 2024

Stjórn Reita fasteignafélags hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður fimmtudaginn 1. febrúar 2024 kl. 16:00 á skrifstofu félagsins að Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, 3. hæð.

Dagskrá fundarins verður sem hér segir:

1. Kosning endurskoðunarfélags

2. Önnur mál, löglega upp borin

Tillaga og greinargerð:

Á aðalfundi Reita þann 8. mars sl. var Ernst & Young ehf. (EY) kjörið endurskoðunarfélag Reita. Hluti starfsemi EY hefur nú færst yfir til Deloitte ehf., þar með talið samningur EY við Reiti. Ekki er um hefðbundinn samruna að ræða og leggur stjórn Reita því til við hluthafa félagsins að staðfesta kjör Deloitte ehf. sem endurskoðunarfélags Reita til að taka af öll tvímæli um hver er rétt kjörinn endurskoðandi félagsins vegna rekstrarársins 2023.

Aðrar upplýsingar:

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í samræmi við eyðublað sem aðgengilegt er á vef félagsins, www.reitir.is/hluthafafundir. Rafrænt umboð skal sent félaginu á netfangið [email protected] áður en fundur hefst.

Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á hluthafafundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurðar um annað. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á netfangið [email protected] eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 laugardaginn 27. janúar 2024.

Hluthafar hafa heimild til að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins skriflega eða rafrænt á netfangið [email protected] í síðasta lagi 22. janúar næstkomandi fyrir kl. 16.00.

Dagskrá hluthafafundarins og tillögur sem fyrir hann verða lagðar, svo og aðrar nauðsynlegar upplýsingar um fundinn má finna á vef félagsins, www.reitir.is/hluthafafundir.

Reykjavík, 9. janúar 2024,

Stjórn Reita fasteignafélags hf.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.