AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

M&A Activity Oct 1, 2023

2202_iss_2023-10-01_973d9388-1006-4b32-b7ff-d05082a260da.html

M&A Activity

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 437747

Reitir fasteignafélag hf. - Innherjaupplýsingar

REITIR: Samrunaviðræðum við Eik fasteignafélag hf. slitið

Stjórnir Reita fasteignafélags hf. og Eikar fasteignafélags hf. hafa ákveðið að hætta áður tilkynntum samrunaviðræðum stjórna félaganna.

Ástæða þessa er sú að ekki hefur tekist að ná samkomulagi um skiptahlutföll milli félaganna. Til undirbunings samningaviðræðum var unnin ítarleg greining á virði félaganna, m.a. með aðkomu óháðra aðila. Reitir er stærst fasteignafélaganna og jafnt rekstrarhorfur, arðsemi og tækifæri til þróunar og uppbyggingar eru með ágætum. Við þær aðstæður metur stjórn Reita það ekki í þágu hagsmuna hluthafa félagsins að fallast á verulega eftirgjöf í virðismati til þess að af sameiningu verði.

Við undirbúning viðræðna hefur farið fram gagnger skoðun á rekstri félagsins og skipulagi sem gagnast mun stjórn þess og stjórnendum við að skerpa á skipulagi og rekstrarlegum áherslum. Þá verður umgjörð um hagnýtingu þróunareigna efld og áhersla lögð á að nýta enn betur uppbyggingar- og sölutækifæri sem í þeim felast.

Upplýsingar veitir Þórarinn V. Þórarinsson, stjórnarformaður, [email protected], s. 822 6699

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.